Raðhús á pöllum með þakverönd á golfvellinum í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 88,677,000 kr
frá 590.000€

3

2

161.90 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5052215

Íbúðakjarni á golfvellinum í Mijas Costa. Kjarninn er á besta stað á Costa del Sol, á milli Marbella og Fuengirola og er umkringdur náttúru en einungis 15 mínútur eru til La Cala de Mijas með sínum fallegu hvítu ströndum. Svæðið er þekkt fyrir alla sína golfvelli og býður upp á mikið úrval alls kyns þjónustu, s.s. verslunarmiðstöðvar, matvöruverslanir, heilsugæslu, banka og veitingastaði. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu með AP-7 og A-7 hraðbrautirnar í nálægð sem gerir það að verkum að auðvelt er að komast til annarra staða, s.s. til Marbella og til Fuengirola á 30 mínútum, til Malaga á 50 mínútum og á flugvöllinn á 35 mínútum. Kjörin staðsetning fyrir orlofsheimili jafn sem varanlegt heimili þar sem Miðjarðarhafslífstílsins er hægt að njóta allt árið um kring.

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir á 2 hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, kjallara með bílskúr og þakverönd. Jarðhæðin er með opið skipulag sem sameinar eldhúsið, stofuna og borðstofuna sem opnast út á verönd. Á hæðinni er einnig gestasalerni. Öll þrjú svefnherbergin eru á annarri hæð, eitt baðherbergi og hjónasvíta með annað baðherbergi innaf og aðgengi út á verönd. Innangengt er á þakveröndina sem er kjörin til að njóta sólar 320 daga ársins. Kjarninn er byggður í halla sem gerir það að verkum að allar íbúðir njóta sólar og fallegs útsýnis yfir golfvöllin, sjóinn og yfir Mijas dalinn.

Íbúðunum fylgja fullbúin eldhús, loftkæling, rafknúnar gardínum í herbergjum, LED lýsing og bílskúr með rafknúinni hurð í kjallaranum. Kjarninn er sjálfbær að miklu leyti vegna sólarsella á þakinu sem tryggir honum einkunnina A í orkunotkun.

Kjarninn er alveg lokaður og býður íbúum upp á öryggi og einkalíf með frábærum sameiginlegum svæðum sem eru með stór græn svæði, sundlaug, sturtur og salerni. Íbúar geta notið golfvallarins, spa og gufubaðs, 4* hótels, tveggja veitingastaða, vínbars, golf skóla og fjölnota íþróttaaðstöðu, eins og tennis- og paddlevallar, fótboltavallar, líkamsræktar og afþreyingaraðstöðu.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 39 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.