Íbúð á jarðhæð í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 31,161,900 kr
frá 209.000€

2

2

66.08 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 2023555

Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í næsta nágrenni og bærinn er tilvalinn staðsetning fyrir búsetu allt árið um kring sem og til dvalar í fríum. Strandir Mar Menor, með sínum vinsælu leirböðum er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið er vel tengt við helstu borgir og svæði í kring og Murcia International flugvöllurinn er í aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð.

Byggingar í kjarnanum eru á tveimur hæðum og hægt að velja um íbúðir á jarðhæð, með stórum veröndum eða íbúðir á efri hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt rúmgóðri opinni stofu, eldhúsi og borðstofu. Fataskápar eru í báðum herbergjum og í hjónaherbergi er sér baðherbergi. Verönd er útfrá stofunni og hjónaherberginu. Á efri hæðum er gengið uppá eigin þakverönd af svölum. Íbúðirnar eru afhentar klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu og hitun og hverri eign tilheyrir eigið bílastæði.

Sameiginlegt svæði eru garðar og tvær stórar sundlaugar með leiksvæði fyrir börnin.

See more...

  • verönd
  • einkabílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 38 km
  • 8 km
  • 31 km
  • 1 km
  • 16 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.