Íbúðir með 3 svefnherbergjum og stórri verönd í El Raso, Guardamar

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar

frá 31,521,231 kr
frá 211.410€

3

2

101.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4747204

Nýr íbúðakjarni í El Raso, sem er afar vinsælt íbúðahverfi í Guardamar del Segura. Svæðið býður upp á úrval af þjónustu af öllu tagi, s.s. matvörubúðir, banka og apótek, bari og veitingastaði, heilsugæslu og alþjóðlega skóla. Mikil afþreying er í boði á svæðinu, eða í stuttri akstursfjarlægð, s.s. golfvellir, vatnsleikjagarður, íþróttavellir og vatnasport í og við stórbrotnar strendur Guardamar sem eru einungis í 10 mínútna fjarlægð frá kjarnanum. Kjarninn er stutt frá La Mata náttúrugarðinum sem er kjörinn fyrir göngur og hjólaferðir. Hverfið er nálægt AP7 hraðbrautinni og N332 sem gerir það auðvelt að tengjast vegakerfinu til að komast á milli staða, en það tekur einungis um 10 mínútur að aka til Torrevieja, um 15 mínútur að komast til Orihuela Costa, um 55 mínútur til Alicante og um 40 mínútur á flugvöllinn.

Kjarninn býður upp á nokkrar týpur af íbúðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, sem eru fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæð með einkagarði (verönd), miðhæð með stórri verönd og þakíbúðir með sólstofu. Allar íbúðirnar eru með fullbúið eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými sem opnast út á verönd með útsýni yfir glæsilegan kjarnann. Hjónaherbergin eru með eigið baðherbergi inn af. Íbúðunum er hægt að breyta m.t.t. innréttinga og efnisvals en öllum fylgja loftkæling, eldhústæki, innbyggðir fataskápar, innfelld lýsing, og einkastæði. Þakíbúðunum fylgir útieldhús, og tengi fyrir heitan pott.

Sameiginlegu svæðin eru afar glæsileg með falleg græn svæði, leikvöll, stóra sundlaug, líkamsrækt sem er utandyra, innisundlaug, púttvöll og bílakjallara.
See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar

Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.

Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar

  • 30 km
  • 18 km
  • 19 km
  • 3 km
  • 10 km
  • 9 km

Nánari upplýsingar um Guardamar

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.