Einbýlishús á einni hæð með kjallara, þakverönd og einkasundlaug í Santa Rosalía Lake and Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 116,298,000 kr
frá 780.000€

3

4

166.00 m2

385.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4798058

Kjarni einbýlishúsa í Santa Rosalía Lake and Life Resort, á ströndinni við Murcia. Svæðið býður upp á einstakar eignir innan lokaðs svæðis með öryggisgæslu. Svæðið er um 700.000 m2 og að mestu grænt svæði umhverfis túrkís litað vatn. Fjöldi tækifæra er til útvistar á svæðinu fyrir alla aldurshópa, s.s. blak, mini golf, siglingar, yoga o.s.frv. Á svæðinu er einnig strandklúbbur með veitingastöðum, líkamsrækt og verslunum. Los Alcazares og stórfenglegar strendur Mar Menor eru í einungis 4 km fjarlægð.

Eimbýlishúsin eru á einni hæð  með 3 svefnherbergjum sem öll eru með baðherbergjum inn af, kjallara og þakverönd. Einbýlishúsin eru byggð á lóðum sem eru 385 – 500 m2, og eru fáanleg í mismunandi útgáfum. Óvenjuleg hönnun húsanna samanstendur af náttúrusteini með nútímalegum hvítum framhliðum og glerþiljum. Stórkostlegur þakgluggi nær yfir allt þak húsanna sem hleypir inn náttúrulegri birtu. Öll svefnherbergin eru með baðherbergi en hjónasvítan er einnig með fataherbergi.

Kjallarinn er gerður úr sömu efnum og húsin sjálf en þar er baðherbergi og tækjaherbergi, sem og stórt opið rými sem hægt er að nýta sem tómstundaherbergi, bíósal, líkamsræktarsal eða innrétta rýmið sem íbúð.

Stórkostlegt útisvæðið er framlenging stofunnar og er með þak að hluta til, sundlaugarsvæði og útisturtu. Utanáliggjandi stigi frá veröndinni leiðir upp á þakveröndina sem er með allar tengingar fyrir útieldhús, heitan pott og sólarsellur. Garðurinn er einnig með falleg græn svæði sem hafa verið hönnuð með litla vatnsnotkun í huga, plöntur og tré. Öll húsin eru með einkabílastæði við húsin, og sum húsanna eru með bílskúr eða yfirbyggt bílastæði með tengi fyrir rafmagnsbíl.

Húsin verða byggð með úrvals byggingarefnum og af miklum gæðum. Þau verða með loftkælingu, fullbúin með öllum eldhústækjum, gólfhita á baðherbergjum, rafmagnsgardínum í svefnherbergjum, inni – og útilýsingu, Smart kerfi, fullbúnum grænum svæðum, einkasundlaug með fossi og tengi fyrir hitapumpu fyrir sundlaugina.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 21 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.