Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
Þessi eign er ekki í boði
REF 3007117
Lúxus raðhús með útsýni yfir ströndina í El Campello, og aðeins 5 mínútna göngufjarlægð við sportbátaklúbbinn. Staðurinn er kjörinn fyrir þessi einstöku raðhús.
Kjarninn samanstendur af 9 húsum, með 3 eða 4 svefnherbergjum. Öllum eignum fylgir einkasundlaug, garður og bílskýli fyrir 2 bifreiðar þaðan sem innangengt er í húsið sjálft. Fyrsta flokks efni eru notuð við byggingu húsanna og hönnunin er nútímaleg. Tilvalið fyrir þá sem leita að lúxus eign á dásamlegu svæði.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
Campello er borg í hjarta Costa Blanca og mjög nálægt stærstu borgunum, í 10 km. fjarlægð frá Alicante og 30 km. frá Benidorm. Fiskiþorp sem á síðustu árum hefur aðlagað sig breyttum áherslum og er nú vinsæll fyrsta flokks ferðamannastaður.
Meðfram 23 km. langri ströndinni, sem er sú lengsta á Costa Blanca, er að finna margskonar íbúðabyggðir með miklu fasteignaframboði. Í gamla miðbænum og nálægt ströndinni einkennist úrvalið af gæðum á góðu verði. Í útjaðri borgarinnar eru nýlegar íbúðabyggðir og eru það aðallega einbýli og raðhús, mörg hver með ótrúlegu sjávarútsýni. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í El Campello
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum