Parhús með 3 svefnherbergjum og einkasundlaug í San Pedro

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

Þessi eign er ekki í boði


3

2

110.46 m2

120.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3151406

Nútímaleg parhús staðsett í Lo Pagan, San Pedro del Pinatar við Costa Cálida. Innan tíu mínútna fjarlægð er að ströndum Mar Menor og allri daglegri þjónustu sem er í boði í San Pedro, eins og stórmörkuðum, hótelum, verslunum, börum og veitingastöðum. Stutt akstursfjarlægð frá golfvellinum á staðnum og aðeins 30 mínútna akstur til helstu borga, Murcia og Cartagena um AP7 hraðbrautina.

Húsin eru á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Aðalhæðin samanstendur af rúmgóðri stofu, borðstofu og fullbúnu eldhúsi ásamt hjónaherbergi og baðherbergi. Stórar glerhurðar í stofu opnast út á flísalagða verönd og einkasundlaug. 2 svefnherbergi og sameiginlegt baðherbergi eru á efri hæð og bæði svefnherbergin hafa aðgang að lítilli verönd með útsýni yfir sundlaugina. Gegn aukakostnaði má koma fyrir aukasvefnherbergi og baðherbergi, þakverönd og/eða geymslu. Spurðu sölumanninn þinn og fáðu nánari upplýsingar!

Húsin eru búin gæðafrágangi og eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu. Þeim fylgja eldhústæki, LED-ljós, fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 39 km
  • 7 km
  • 30 km
  • 2 km
  • 15 km
  • 12 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.