Nútímalegt einbýli með 3 svefnherbergjum í San Miguel de Salinas

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas

frá 59,964,950 kr
frá 399.500€

3

3

154.73 m2

180.42 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3297720

Kjarni einbýlishúsa, í hinu rótgróna íbúðahverfi El Galán, í San Miguel de Salinas, nálægt Villamartín golfvellinum. Allar daglegar nauðsynjar, eins og stórmarkaðir, verslanir, barir og veitingastaðir eru í stuttri fjarlægð frá kjarnanum. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin, El-Limonar alþjóðaskólinn og frábærar strendur Orihuela Costa eru í stuttri akstursfjarlægð. Fyrir golfáhugamenn er val um fjóra golfvelli innan 15 km radíusar.

Kjarninn samanstendur af einbýlishúsum á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt þakverönd. Á jarðhæð er opin stofa, eldhús og borðstofa, auk svefnherbergis og baðherbergis. 2 svefnherbergi eru á efri hæð, hvort um sig með sér baðherbergi og aðgangi að verönd með útsýni yfir garðinn. Frá þakveröndinni má njóta sólskins allan daginn. Rúmgóð verönd og garður útfrá stofu er yfirbyggður að hluta með pergólu. Í sumum húsanna er ókláraður kjallari þar sem lagt er fyrir baðherbergi.

Einbýlishúsin eru byggð með gæða frágangi og afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar, LED-lýsing, garður með náttúrulegu grasi og bílastæði á lóð, þar sem setja má upp hleðslustöð fyrir rafbíl.

Velja má um ýmislegt við kaupin, eins og að byggja kjallara með allt að 2 svefnherbergjum og auka baðherbergi, setja gólfhita á allt húsið, koma fyrir einkasundlaug með/án varmadælu og fleira. Fáðu frekari upplýsingar hjá ráðgjafanum þínum.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas

San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.

San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.

  • 56 km
  • 5 km
  • 21 km
  • 5 km
  • 6 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um San Miguel de Salinas

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.