Raðhús á einni hæð með 2 svefnherbergjum í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

Þessi eign er ekki í boði


2

2

90.00 m2

182.26 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3685071

Nútímalegur kjarni, miðsvæðis í San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida. Allar daglegar nauðsynjar eru í göngufæri, eins og matvöruverslanir, bankar, apótek, verslanir og veitingastaðir. Verslunarmiðstöðin Dos Mares er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Strendur Mar Menor eru í stuttri akstursfjarlægð. Kjarninn er nálægt AP7 hraðbrautinni, sem tengir helstu borgir, Alicante, Murcia og Cartagena.

Raðhús af tveimur gerðum; hús á einni hæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, eða tveggja hæða hús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Alrýmið samanstendur af setustofu, borðkrók og eldhúsi og opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta til. Báðar gerðir húsanna hafa svefnherbergi með aðgangi að sér verönd, sem og hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi. Tveggja hæða húsið hefur baðherbergi, stóran bílskúr og þvottahús á jarðhæð, og tvö svefnherbergi og baðherbergi á efri hæð.

Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja fataskápar, þvottahús og bílastæði á lóð. Velja má um aukahluti gegn kostnaði, svo sem sundlaug eða auka svefnherbergi í sumum þeirra.

See more...

  • verönd
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 41 km
  • 8 km
  • 31 km
  • 2 km
  • 16 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.