Nútímalegt einbýlishús með 3 svefnherbergjum, þakverönd og kjallara í Santa Rosalia Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Þessi eign er ekki í boði


3

3

205.00 m2

211.54 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3918209

Nútímaleg einbýli í Santa Rosalía kjarnanum, innan við 4 km frá ströndum Murcia. Einstakur kjarni, umhverfis stórt stöðuvatn með kristaltæru vatni, strandsvæðum, bryggju og strandklúbbi. Í kjarnanum eru einnig mörg garðsvæði með göngu- og hjólastígum og íþróttamannvirki af ýmsu tagi.

Um er að ræða tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, þakverönd og ókláruðum kjallara. Eignirnar eru í nútímalegum Miðjarðarhafsstíl, með skörpum hvítum framhliðum og náttúrusteini sem einnig prýðir húsin að innan. Opin setustofa, borðstofa og eldhús eru í eignunum en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd og einkasundlaug. Hjónaherbergi og baðherbergi má finna á jarðhæð og 2 en-suite svefnherbergi á efri hæð. Þakveröndin býður upp á glæsilegt víðáttumikið útsýni yfir svæðið og er með foruppsetningu fyrir nuddpott og/eða grill. Rúmgóðum kjallara, 73m2 að stærð og með sér verönd, er hægt að breyta eftir þörfum gegn auka kostnaði, svo sem í sér íbúð, afþreyingarherbergi eða nýta sem líkamsræktaraðstöðu.

Húsin eru afhent með foruppsetningu fyrir loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, eldhústækjum, einkasundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu og bílastæði á lóð með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.

Gegn aukakostnaði má breyta kjallara eftir þörfum og/eða setja upp grill, nuddpott eða sumareldhús á þakveröndinni.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • garður
  • bílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 32 km
  • 21 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.