Parhús með 3 svefnherbergjum, þakverönd og sundlaug í San Javier

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

frá 48,024,495 kr
frá 319.950€

3

2

94.00 m2

120.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3925475

Einbýlishúsakjarni, aðeins 1 km frá ströndum San Javier, við Costa Cálida. Bærinn býður upp á mikið úrval daglegrar þjónustu, allt árið um kring, svo sem matvöruverslanir, verslanir, bari og veitingastaði, auk Dos Mares verslunarmiðstöðvarinnar. Mar Menor strendurnar bjóða upp á skemmtilega „chiringuitos“ (strandbari) og vatnaíþróttastarfsemi. Önnur útivist er enn fremur í boði á svæðinu; svo sem siglingar, hjólreiðar og golf. Svæðið býr ennfremur að hraðbrautaneti sem tengir það við stórborgir eins og Murcia, Cartagena og Alicante.

Kjarninn samanstendur af parhúsum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á tveimur hæðum auk þakverandar. Skipulag jarðhæðar og stórar glerhurðar í stofu, skapa rúmgott og bjart alrými, með borðstofu og eldhúsi. Hjónaherbergi og baðherbergi má einnig finna á jarðhæð en 2 svefnherbergi eru  á efri hæð (annað þeirra með sér verönd) ásamt sameiginlegu baðherbergi. Rúmgóð þakveröndin er tilvalin til að njóta lífsins úti við.

Í kjarnanum er einnig einbýlishús með en-suite svefnherbergi á jarðhæð og 2 en-suite svefnherbergjum á efri hæð, með aðgangi að sameiginlegri verönd með útsýni yfir sundlaugina.

Húsunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, innbyggðir fataskápar, eldhústæki, inni og úti LED lýsing, einkasundlaug og bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið. 

 Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.

  • 86 km
  • 11 km
  • 27 km
  • 1 km
  • 19 km
  • 15 km

Nánari upplýsingar um San Javier - Santiago

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.