Íbúð með 2 svefnherbergjum og útsýni til hafs í Manilva

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

Þessi eign er ekki í boði


2

2

114.34 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3955154

Íbúðakjarni, aðeins 200m frá ströndinni í Manilva og í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá heillandi bænum, La Duquesa. Með nálægð við ströndina, ýmis þægindi og gott úrval af afþreyingu, er þessi kjarni kjörinn kostur fyrir sumarbústað og frábært fjárfestingartækifæri. Hinir virtu golfvellir Valderrama og Sotogrande eru í aðeins nokkra kílómetra fjarlægð.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, fáanlegar af mismunandi gerðum; jarðhæð, millihæð, þakíbúðir eða íbúðir á tveimur hæðum. Allar eignir eru með stórum veröndum og stórkostlegu sjávarútsýni og afhentar með eldhúsi með eldhústækjum, loftkælingu og arni í stofunni.

Boðið er uppá 24 tíma eftirlit við innganginn fyrir gangandi vegfarendur. Kjarninn hefur tvö aðskilin svæði með útisundlaugum, stórum görðum, heilsulind með innisundlaug, útisturtum, finnsku gufubaði og búningsklefum. Að auki má þar finna stórkostlega líkamsræktarstöð með sjávarútsýni.
See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

Manilva er ferðamannabær við vestur Costa del Sol, mjög nærri mörkum Cádiz héraðs sem liggur 97 km frá höfuðborg Málaga og 35 km frá Gíbraltar. Frjósemi á svæðinu og landfræðileg staðsetning þess hafði mikið aðdráttarafl fyrir fornar þjóðir sem setjast vildu þar að og gerðu þannig Manilva að byggð allt frá forsögulegum tíma. 

Landslagið á svæðinu einkennist af hæðum sem stíga í áföngum upp frá hafinu inní landið og gerir fólki kleift að njóta þess að ferðast bæði um græn svæði og við ströndina. Íbúafjöldi er yfir 15.000 í dag og dreifist um þrjú þéttbýlissvæði; Manilva, Sabinillas og El Castillo auk fjölda íbúðahverfa. 

  • 95 km
  • 4 km
  • 61 km
  • 0 km
  • 39 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um Manilva

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.