Íbúð á jarðhæð með garði og útsýni til hafs í Cala de Mijas

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 78,052,000 kr
frá 520.000€

2

2

89.35 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4018147

Einstakur íbúðakjarni í Cala de Mijas, rúmlega 1 km frá ströndinni og umkringdur öllum daglegum nauðsynjum. Kjarninn er hannaður sem stór orlofsdvalarstaður með suðrænum eyjastíl, og býður upp á glæsilega íþrótta- og tómstundaaðstöðu, sem gerir íbúðirnar að kjörnu fjárfestingartækifæri. Fuengirola er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð en Málaga, höfuðborg Costa del Sol, og flugvöllur hennar, eru í rúmlega 30 mínútna fjarlægð.

Kjarninn samanstendur af nokkrum þriggja hæða íbúðablokkum, sem raðast í kringum glæsilega garða. Íbúðirnar eru fáanlegar með 2 eða 3 svefnherbergjum og af ýmsum gerðum; íbúðir á jarðhæð með garði, íbúðir á miðhæð með stórri verönd og þakíbúðir. Íbúðirnar hafa opna hönnun sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús ásamt stórum glerhurðum með útgengi út á verönd. Flestar íbúðirnar eru með stórkostlegu sjávarútsýni. Íbúðirnar eru afhentar með eldhústækjum, loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, geymslu og 1 eða 2 bílastæði, allt eftir gerð.

Sameiginleg aðstaða er glæsileg og inniheldur meðal annars klúbbhús, úti og inni líkamsrækt, paddle og tennisvelli, badmintonvöll, fjölnota velli, strandblakvöll, vinnurými, golfhermi, strandsundlaug, innisundlaug, tyrkneskt gufubað, finnskt gufubað og leiksvæði fyrir börn.
See more...

  • verönd
  • garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 4 km
  • 5 km
  • 7 km
  • 2 km
  • 7 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.