Íbúð með 3 svefnherbergjum, stórri verönd og útsýni til hafs í Manilva

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

Þessi eign er ekki í boði


3

2

121.74 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4041575

Nútímalegur íbúðakjarni í Manilva, í vesturhluta Málaga-héraðs, sem þekkt er fyrir frábærar strendur, eins og La Chullera, sem er í aðeins 2ja mínútna fjarlægð frá kjarnanum. Manilva býður upp á frábært úrval af tómstunda-, menningar- og matarupplifunum. Til viðbótar við dagleg þægindi eru einnig margir golfvellir og smábátahöfn, eins og La Duquesa, í innan við 10 mínútna fjarlægð með bíl. A-7 hraðbrautin gerir það auðvelt að ferðast um allt Málaga hérað.

Íbúðir í boði með 2 og 3 svefnherbergjum og stórum veröndum. Eignir á jarðhæð eru með sér garði. Kjarninn hefur nútímalega hönnun og samanstendur af íbúðablokkum á þremur hæðum. Íbúðirnar snúa í suður, hleypa náttúrulegu ljósi inn í opna stofuna og bjóða upp á einstakt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Íbúðirnar eru byggðar með gæða efnum og hægt er að velja um ýmislegt í frágangi. Eignunum fylgir loftkæling og eldhústæki.Hápunktur kjarnans er sameiginlega svæðið sem nær yfir 5.000 m2, og inniheldur stór garðsvæði, saltvatnssundlaugar fyrir fullorðna og börn, heilsulindarsvæði, líkamsrækt innanhúss og úti, leiksvæði, bar og félagsklúbb.
See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

Manilva er ferðamannabær við vestur Costa del Sol, mjög nærri mörkum Cádiz héraðs sem liggur 97 km frá höfuðborg Málaga og 35 km frá Gíbraltar. Frjósemi á svæðinu og landfræðileg staðsetning þess hafði mikið aðdráttarafl fyrir fornar þjóðir sem setjast vildu þar að og gerðu þannig Manilva að byggð allt frá forsögulegum tíma. 

Landslagið á svæðinu einkennist af hæðum sem stíga í áföngum upp frá hafinu inní landið og gerir fólki kleift að njóta þess að ferðast bæði um græn svæði og við ströndina. Íbúafjöldi er yfir 15.000 í dag og dreifist um þrjú þéttbýlissvæði; Manilva, Sabinillas og El Castillo auk fjölda íbúðahverfa. 

  • 32 km
  • 2 km
  • 60 km
  • 1 km
  • 38 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Manilva

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.