TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Raðhús með einkasundlaug og sjávarútsýni í Calpe

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe

Þessi eign er ekki í boði


3

4

311.00 m2

147.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4080284

Nýr húsakjarni, aðeins 600m frá hinni margverðlaunuðu Arenal Bol strönd í Calpe, við norður Costa Blanca. Allar daglegar nauðsynjar eru í boði allt árið um kring, eins og stórmarkaðir, verslanir, bankar, apótek o.s.frv., auk margvíslegrar afþreyingar við aðlaðandi strandgötuna, svo sem ísbúðir, kaffihús og veitingastaðir. Kjörinn staður til að njóta Miðjarðarhafslífsstílsins í fríum eða allt árið um kring.

Í kjarnanum eru raðhús með 3 svefnherbergjum og parhús með 4 svefnherbergjum, öll á tveimur hæðum auk kjallara/bílskúrs. Allar eignirnar hafa opna setustofu/borðstofu og eldhús á jarðhæð en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd með grillsvæði og einkasundlaug. Á þessari hæð er einnig þvottahús og baðherbergi/gestasalerni. Raðhúsin eru öll með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum (eitt en-suite) á efri hæð. Parhúsin eru með 1 svefnherbergi á jarðhæð og 3 en-suite svefnherbergjum á efri hæð. Það fer eftir tegund hvort þakverönd er á húsunum.

Allar eignirnar eru með kjallara sem samanstendur af einu eða fleiri fjölnota herbergjum og baðherbergi, auk bílskúrs fyrir allt að 2 bíla. Þökk sé upphækkunar á lóð, njóta allar eignirnar stórkostlegs víðáttumikils útsýnis yfir Miðjarðarhafið og klettinn fræga, Peñón de Ifach.

Húsin eru byggð með gæðaefnum og eru afhent með loftkælingu, gæða eldhústækjum, gólfhita, innbyggðum fataskápum, snjallkerfi, grillsvæði, einkasundlaug og bílastæði.

Sameiginlegt svæði hefur garða með staðbundnum plöntum, stóra sundlaug fyrir fullorðna og fyrir börn, útisturtur, salerni, svæði með pergólu o.fl.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílageymsla í kjallara
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe

Calpe er, ásamt Denia, ein af megin borgunum á Norður Costa Blanca. Eitt af einkennum Calpe og táknrænt fyrir Costa Blanca er Peñón de Ifach, klettur sem teygir sig 332 m. upp til himins af ströndinni. Peñón de Ifach er heimili ýmissa fuglategunda og hefur verið þjóðgarður frá 1987.  

Calpe er alsett gæðalegum ströndum og víkum sem þúsundir gesta hafa notið á síðustu árum. Ferðaiðnaðurinn hefur breytt þessari hafnarborg í eina af meginkjörnum búsetuferðaþjónustunnar á Costa Blanca. Það má sannreyna á ótrúlegu úrvali þjónustu og fasteigna við sjávarsíðuna. Fasteignakaupandinn hefur úr mörgu að velja, allt frá íbúðum að einstökum einbýlum. Skoðið fasteignirnar á Norður Costa Blanca

  • 78 km
  • 57 km
  • 57 km
  • 0 km
  • 56 km
  • 19 km

Nánari upplýsingar um Calpe

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.