Íbúð með verönd og útsýni til hafs í Torremolinos

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Torremolinos

Þessi eign er ekki í boði


2

2

100.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4139302

Nýr íbúðakjarni í einstöku íbúðahverfi í Torremolinos, í aðeins 6 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Svæðið hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn við Costa del Sol vegna náttúrulegs umhverfis, stranda, verslanasvæða, vegakerfis og afþreyingar. Fullkomið fyrir golf- og siglingaáhugamenn enda mjög nálægt nokkrum golfvöllum og sportbátahöfninni Puerto Deportivo de Benalmádena. Frábær staðsetning, í hjarta Costa del Sol, aðeins 30 mínútur frá borgunum Marbella og Málaga, og aðeins 15 mínútur frá flugvellinum.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2, 3 og 4 svefnherbergjum í fjögurra hæða byggingum. Allar íbúðirnar hafa stórar verandir með sjávarútsýni, fullkomið til að njóta frábærs loftslags í Málaga. Eignunum fylgir loftkæling, eldhústæki, fataskápar, geymsla og bílastæði. Þakíbúðum fylgja tvö bílastæði.

Í kjarnanum eru nokkur sameiginleg svæði, tilvalin til að njóta með fjölskyldunni, eins og sundlaug, sameiginleg salerni, leiksvæði fyrir börn, garðsvæði með sjálfvirkri vökvun og LED lýsingu á göngustígum, auk fjölnota herbergis fyrir uppákomur. Einnig eru hleðslustöðvar fyrir rafbíla í bílageymslu.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Torremolinos

Torremolinos er fjölþjóðlegasti bær Andalúsíu. Á meðal meira en 68.000 íbúa, má telja yfir 100 ólík þjóðerni. Bærinn stendur 49 metra yfir sjávarmáli og er í 13 km fjarlægð frá miðborg höfuðborgar svæðisins, Málaga. Bærinn á sér langa og víðfeðma sögu eins og greina má af fönískum, grískum, rómönskum og arabískum leifum sem fundist hafa á svæðinu. 

Á miðri tuttugustu öld, uppgötvaði þetta fiskiþorp hversu miklir möguleikar lægju í ferðamannaþjónustu, miðað við umfang strandlengjunnar og sökum fyrirtaks loftslags á svæðinu. Síðan þá, hefur Torremolinos þróast í það að verða einn eftirsóttasti áfangastaður ferðamanna við Costa del Sol, þökk sé miklu framboði á þjónustu við ferðamenn og gæðum allra innviða. Borgin hefur skipað sig í fyrsta sæti sem mikilvægasti ferðamannastaður í Andalúsíu, framar en borgir eins og Sevilla, Marbella eða Roquetas de Mar, og er að auki, ásamt Marbella, sú borg sem mesta framboð hefur af gistingu í allri Andalúsíu. Vinsæll áfangastaður meðal Breta, Þjóðverja, Íra, Frakka, Skandinavíubúa og Spánverja sem koma annars staðar að. 

  • 9 km
  • 2 km
  • 2 km
  • 1 km
  • 2 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um Torremolinos

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.