Lúxus íbúð með 3 svefnherbergjum og útsýni til hafs í Benahavís

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís

frá 133,138,700 kr
frá 887.000€

3

3

144.02 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4247346

Frábær íbúðasamstæða í Benahavís, með glæsilegu útsýni yfir Miðjarðarhafið og alla strandlengjuna. Frábær staðsetning í svokölluðum Golfdal, aðeins 10 mínútur frá Marbella og Puerto Banús, með lúxusverslunum, glæsilegum veitingastöðum og einni frægustu smábátahöfn Evrópu. Svæðið er ekki aðeins þekkt fyrir virta golfvelli, eins og La Quinta Golf & Country, Benahavís golfklúbbinn, Aloha golfklúbbinn og El Higueral, það er líka kjörinn staður fyrir ævintýraíþróttir og gönguferðir, í fallegu og náttúrulegu umhverfi. Fallega bæinn, Estepona, má heimsækja á 15 mínútum og flugvellina í Málaga og Gíbraltar má nálgast á 50 mínútum, þökk sé A-355 og AP-7 hraðbrautunum.

Kjarninn er hannaður til að njóta glæsilegs útsýnis yfir alla strandlengjuna, frá Marbella-flóa til Gíbraltar-klettsins, með Afríku í bakgrunni. Einstakar íbúðir með 3 og 4 en-suite svefnherbergjum eru í boði. Velja má milli jarðhæða með verönd og garði með einkasundlaug, íbúða á miðhæð með yfirbyggðri verönd og þakíbúða með pergólu yfirbyggðri verönd og þakverönd með einkasundlaug. Hver íbúð býður upp á opna setustofu og rúmgóð en-suite svefnherbergi, sem öll opnast út á verönd. Hjónaherberginu fylgir einnig sér fataherbergi. Íbúðirnar eru byggðar með hágæða efnum og þeim fylgir loftkæling, gólfhiti, fyrsta flokks eldhústæki, geymsla og 1 eða 2 bílastæði, allt eftir gerð.

Kjarninn er lokaður, með 24 klst. öryggisgæslu og samanstendur af frábærum sameiginlegum svæðum, eins og görðum með fjölærum blómum, göngustígum, slökunarsvæðum, 3 saltvatnslaugum, þar af einni innandyra. Einnig má finna líkamsræktarstöð, stórkostlega heilsulind, vinnurými og félagsherbergi í kjarnanum.

See more...

  • yfirbyggð verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benahavís

Benahavís er fjallaþorp í Málaga héraði, staðsett 7 km frá ströndinni. Bærinn liggur milli Marbella, Estepona og Ronda, við vestur Costa del Sol og er vinsæll sökum úrvals veitingastaða og fyrir það að vera hvítt þorp með dæmigerðu arabísku skipulagi. 

Benahavís stendur 150 m yfir sjávarmáli. Loftslagið er Miðjarðarhafsloftslag, með meðalhita á ári um 17º C. Íbúafjöldi er um 7.700 en meira en helmingur íbúa eru erlendir ríkisborgarar. 

Þorpið tengir einkenni hefðbundinna hvítra þorpa í Málaga héraði við nútímann og gæði innviða í ferðamannaþjónustu. Þar eru samankomnir tugir golfvalla og fjölbreytt aðstaða til ævintýraíþrótta í fallegu náttúrulegu umhverfi þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða. 

  • 67 km
  • 5 km
  • 34 km
  • 5 km
  • 11 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Benahavís

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.