Raðhús með 3 svefnherbergjum, 600m frá hafinu í Rincón de la Victoria

Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria

frá 66,044,000 kr
frá 440.000€

3

2

187.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4259151

Nýr raðhúsakjarni, 600m frá ströndinni, í Rincón de la Victoria, Costa del Sol. Fallegt og rólegt íbúðahverfi, nálægt öllum þægindum, eins og matvöruverslunum, skólum, veitingastöðum, íþróttamiðstöðvum og golfvöllum. Heimsborgin Málaga og flugvöllurinn eru í innan við 30 mínútna fjarlægð.

Nútímaleg raðhús á tveimur hæðum, með 3 eða 4 svefnherbergjum og kjallara/bílskúr og, eftir gerð, eigin þakverönd. Eignirnar eru hannaðar í takt við halla lóðarinnar, með áherslu á að hleypa náttúrulegu ljósi inn í stór opin innri rými og jafnframt að tryggja stórkostlegt sjávarútsýni. Útirýmið er hápunkturinn, með stórum veröndum og einkagarði, þar sem frábært Miðjarðarhafsloftslag getur notið sín. Í kjallara fylgir bílskúr með plássi fyrir tvo bíla.

Raðhúsin eru búin gæðafrágangi og þeim fylgja eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum með rafplötum og gólfhiti með vatnslögnum í öðrum rýmum, loftkæling og rafmagnsgluggahlerar í setustofu og svefnherbergjum. Gegn auka gjaldi má bæta við aukahlutum eins og nuddpotti í garði, eða að sérsníða skipulag eignarinnar.
See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria

Rincón de la Victoria er ferðamannastaður við Costa del Sol, þekktur fyrir sjávarhella og strendur. Sökum nálægðar við borg Málaga (sem liggur í 16 km fjarlægð um hraðbrautina), hefur staðurinn orðið gististaður fjöldamargra þó að enn megi njóta karakters fiskiþorpsins. 

Rincón de la Victoria tilheyrir og er samþætt höfuðborgarsvæði Málaga. Með íbúafjöldann 49.790 er staðurinn níunda fjölmennasta sveitarfélag héraðsins og annað í röðinni á svæðinu sjálfu, á eftir Vélez-Málaga.

  • 32 km
  • 8 km
  • 15 km
  • 1 km
  • 12 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um Rincón de la Victoria

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.