Nútíma einbýlishús á einni hæð með kjallara og einkasundlaug í La Finca Golf

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

frá 93,062,000 kr
frá 620.000€

3

2

132.95 m2

419.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4327243

Nýr kjarni einbýlishúsa á hinum stórbrotna La Finca golfvelli, við suður Costa Blanca. Svæðið býður upp á allar daglegar nauðsynjar, með verslanasvæði, en þar má finna matvörubúð, verslanir, kaffihús og úrval veitingastaða. Stórkostlegt 5* hótel með heilsulind er á staðnum, ásamt klúbbhúsi og einstökum 18 holu golfvelli. Bærinn Algorfa og hverfið Ciudad Quesada eru í stuttri akstursfjarlægð en þar er viðbót við úrval þjónustu og tómstundastarfs. Fallegar strendur Guardamar og Torrevieja eru í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.

Húsin eru byggð á lóðum á milli 415m2-670m2, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Alrýmið er opið og sameinar setustofu, eldhús og borðstofu, með stórum lofthæðarháum gluggum sem opnast út á glæsilega L-laga verönd, garð og einkasundlaug. Veröndin er yfirbyggð að hluta til með pergólu, sem gerir hana að kjörnu rými til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi og fataherbergi. Kjarninn er hluti af lokuðu hverfi, með sameiginlegum görðum og göngustígum sem tengja alla samstæðuna.

Eignirnar eru afhentar með loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, einkasundlaug með útisturtu og bílastæði á lóð. Það fer eftir gerð, hvort húsin eru með ókláruðum kjallara, sem hægt er að breyta gegn aukakostnaði.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.

Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.

  • 34 km
  • 18 km
  • 13 km
  • 13 km
  • 13 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um La Finca

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.