Einbýli á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og sundlaug í Balsicas, Murcia

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland

Þessi eign er ekki í boði


3

2

88.65 m2

163.23 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4393328

Nýr kjarni einbýlishúsa í Balsicas, litlum bæ inni í landi í Murcia héraði. Öll dagleg þjónusta er í boði í bænum, svo sem stórmarkaðir, bankar, apótek og læknamiðstöð, auk vikulegs götumarkaðs með afurðum frá nærliggjandi ökrum. Aðalbær svæðisins er Los Alcázares, sem er í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð og býður upp á meira úrval þjónustu, auk fallegra sandstranda við Mar Menor. Fyrir íþróttaáhugafólk er ýmis íþróttaaðstaða á svæðinu, auk nokkurra golfvalla, innan 20 mínútna radíusar.

Nútímaleg einbýlishús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk þakverandar. Alrýmið er opið og rúmgott, með setustofu, borðstofu og amerísku eldhúsi. Lofthæðarháir gluggar opnast út á verönd með einkasundlaug. Stór þakverönd með sumareldhúsi er á húsunum, kjörinn staður til að njóta sólríkra daga og borða undir berum himni með fjölskyldu og vinum. Sumareldhúsið er með foruppsetningu fyrir ísskáp og þvottavél.

Einbýlishúsin eru byggð með gæðafrágangi og boðið er uppá nokkra valmöguleika. Eignunum fylgja eldhústæki, foruppsetning fyrir loftkælingu, fataskápar, inni- og útilýsing, sumareldhús á þakverönd, sundlaug með útisturtu og bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland

Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.

Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.

  • 16 km
  • 20 km
  • 24 km
  • 13 km
  • 26 km
  • 22 km

Nánari upplýsingar um Murcia Inland

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.