Einbýlishús með 3 svefnherbergjum, einkasundlaug og þakverönd, í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 63,367,500 kr
frá 425.000€

3

3

151.50 m2

171.43 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4438660

Glæsilegur kjarni húsa á einu vinsælasta svæði San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida. Miðbærinn, með fjölbreytt úrval daglegra nauðsynja, er í aðeins 5 mínútna fjarlægð og strendur Miðjarðarhafsins og Mar Menor eru í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð.  Tvær frábærar verslunarmiðstöðvar, Dos Mares og Zenia Boulevard, eru skammt undan, með úrvali af verslunum og veitingastöðum. Fyrir útivistarfólk hefur bærinn glæsilegt net hjólastíga, íþróttamannvirki, hjólabrettagarð og nokkrir golfvellir eru í innan við 20 mínútna radíus.

Í kjarnanum eru fjögur einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, auk þakverandar. Aðalhæðin er með opinni hönnun, með eldhúsi, borðkrók og setustofu sem opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta og einkasundlaug. Hjónaherbergi og baðherbergi má einnig finna á þessari hæð. 2 svefnherbergi eru á fyrstu hæð, bæði með sér baðherbergi og hjónaherbergið með sér verönd. Innri stigi liggur uppá tilkomumikla 52m2 þakverönd, þar sem njóta má einstaks loftslags Costa Cálida.

Nútímaleg hönnun með glæsilegum hvítum framhliðum með náttúrusteini. Eignirnar eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, eldhústækjum, rafmagnsgluggahlerum, gólfhita á baðherbergjum, innbyggðum fataskápum og myndavélardyrasíma. Útisvæði eru með einkasundlaug, útisturtu, garði með gervigrasi og bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 30 km
  • 9 km
  • 30 km
  • 1 km
  • 16 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.