Íbúð með útsýni til hafs, 850m frá strönd í El Campello

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello

Þessi eign er ekki í boði


2

2

82.23 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4484636

Ný íbúðasamstæða í El Campello, í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá miðbænum og 850m frá ströndinni. Á svæðinu er fullkomið úrval þjónustu og glæsileg 23 km strandlengja, með fiskihöfn og smábátahöfn, auk göngusvæðis með úrvali af afþreyingu og tómstundastarfi. Margar strendur og flóar svæðisins, og einstakt loftslag, gerir þetta að kjörnum stað til að njóta vatnaíþrótta allt árið um kring. Fyrir golfáhugamenn eru níu framúrskarandi golfvellir innan 25 km radíusar og frábært vegakerfi gerir það auðvelt að komast til annarra ferðamannasvæða eins og Alicante og Benidorm á innan við 20 og 30 mínútum. Alicante flugvöllurinn er í aðeins 25 mínútna fjarlægð.

Nútímalegar íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, fáanlegar af mismunandi gerðum; íbúðir með stórri verönd, þakíbúðir með þakverönd og þakíbúð á tveimur hæðum. Lögð er áhersla á að nýta sólarbirtu sem gerir eignirnar bjartar og fallegar. Allar íbúðirnar eru með stórbrotnu sjávarútsýni og opnu stofurými, eldhúsi og borðstofu sem opnast út á útisvæði. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi og fataherbergi.

Gæðafrágangur er á eignunum og þeim fylgir loftkæling, rafmagnsgluggahlerar í stofu, fataskápar, myndavélardyrasími, geymsla og bílastæði.

Samstæðan býður upp á garðsvæði með sameiginlegri sundlaug. Þetta er tilvalin eign fyrir dvöl í fríum eða til varanlegrar búsetu.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello

Campello er borg í hjarta Costa Blanca og mjög nálægt stærstu borgunum, í 10 km. fjarlægð frá Alicante og 30 km. frá Benidorm. Fiskiþorp sem á síðustu árum hefur aðlagað sig breyttum áherslum og er nú vinsæll fyrsta flokks ferðamannastaður.

Meðfram 23 km. langri ströndinni, sem er sú lengsta á Costa Blanca, er að finna margskonar íbúðabyggðir með miklu fasteignaframboði. Í gamla miðbænum og nálægt ströndinni einkennist úrvalið af gæðum á góðu verði. Í útjaðri borgarinnar eru nýlegar íbúðabyggðir og eru það aðallega einbýli og raðhús, mörg hver með ótrúlegu sjávarútsýni. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í El Campello

  • 28 km
  • 12 km
  • 12 km
  • 1 km
  • 10 km
  • 26 km

Nánari upplýsingar um El Campello

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.