Íbúð með verönd í Santa Rosalía Lake and Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Þessi eign er ekki í boði


2

2

86.79 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4564706

Ný íbúðasamstæða í hinu glæsilega Santa Rosalía Lake and Life Resort, við Costa Cálida. Einstakt svæði í kringum tilbúið lón í strandstíl með kristaltæru vatni og frábærri aðstöðu sem gerir Santa Rosalía að ekta orlofsdvalarstað. Til viðbótar við hina fjölmörgu vatnastarfsemi sem er í boði við vatnið, er strandbarinn „chiringuito“, strandklúbbur með veitingastað og líkamsræktarstöð, minigolfvöllur, hlaupa- og hjólreiðastígar, afmörkuð afslöppunarsvæði til að stunda jóga eða hugleiðslu, og margt fleira á svæðinu. Ef sú afþreying dugar ekki, þá eru einnig fjölbreyttir golfvellir í næsta nágrenni. Hinar stórkostlegu strendur Mar Menor og bæjarins Los Alcázares eru aðeins 4 km í burtu, þar sem fjölbreytt úrval daglegrar þjónustu er í boði. Hverfið er lokað, með öryggisgæslu við innganginn og myndavélaeftirliti, sem tryggir öryggi og næði.

Samstæðan mun samanstanda af sex blokkum á fjórum hæðum hver, með íbúðum af mismunandi gerðum; jarðhæðareignir með 3 svefnherbergjum og sér garði, miðhæðaeignir með 2 svefnherbergjum og verönd og ein þakíbúð í hverri blokk með 3 svefnherbergjum og tveimur stórum veröndum. Allar íbúðirnar hafa rúmgóða og opna setustofu, borðkrók og eldhús, með stórum gluggum sem opnast út á verönd og í þeim eru 2 baðherbergi, þar af eitt en-suite fyrir hjónaherbergið. Hægt er að sérsníða skipulag þakíbúða eftir byggingarstigi þannig að koma megi fyrir gestasalerni eða auka geymslu. Með viðarklæðningu sem hluta af innri hönnun næst hlýtt og aðlaðandi andrúmsloft. Eignunum fylgja rafmagnsgluggahlerar, innbyggðir fataskápar, fullbúin baðherbergi, foruppsetning fyrir loftkælingu, þjófavarnarkerfi, myndavélardyrasími, geymsla og bílastæði.

Auk aðstöðunnar sem er í boði á dvalarstaðnum hefur samstæðan sér sameiginlegt svæði, með stórum garði og sundlaug, auk bílastæða undir berum himni.

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 21 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.