Lúxuseinbýli með einkasundlaug í Altea Hills

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea

frá 285,190,000 kr
frá 1.900.000€

4

4

500.90 m2

1270.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4632939

Einstakt lúxuseinbýli á hinu mikils metna svæði Altea Hills, við hlið Altea-golfklúbbsins. Miðborg Altea með allri sinni þjónustu er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð, og í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Playa de l‘Olla og siglingaklúbbnum Campomanes. Borgin er mjög vel tengd við AP-7, A-70 og N-332, svo hægt er að komast hratt og örugglega að vinsælustu ferðamannastöðum svæðisins, eins og að hinni seiðandi Benidorm eða Calpe á aðeins 15 mínútum. Alþjóðlegi flugvöllurinn í Alicante er í aðeins 45 mínútna fjarlægð.

Í boði er lúxúseinbýli sem er 1.270 m2 að stærð, á þremur hæðum auk sólstofu, með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum.  Jarðhæðin er eitt opið rými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, þaðan sem útgengt er í garðinn um stóra glugga. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með baðherbergi, þvottahúsi og gestasalerni. Á fyrstu hæð eru hin þrjú svefnherbergin, öll mjög stór og með sérbaðherbergi, og er útgengt úr tveimur þeirra á svalir. Eitt svefnherbergið er með fataherbergi og baðherbergi með baðkari og sturtu. Kjallarann, sem er yfir 200 m2, er hægt að sérsníða að þörfum eiganda en þar er einnig stór bílskúr með rými fyrir nokkur farartæki. 

Útisvæðið er hannað af sömu kostgæfni og íbúðin sjálf, með stórri verönd, sundlaug með gosbrunni og hvíldarsvæði, auk þess sem fallegur garður á mismunandi hæðum umlykur allt húsið. Sólstofan sem er yfir 100 m2 er fullkominn staður til að njóta sólar og

dásamlegs veðurfars á Costa Blanca. Einstakt hús með góðu næði, nálægt golfinu og með allt innan handar sem þarf til að njóta lífsins lystisemda við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílageymsla í kjallara
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea

Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.

Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.

  • 70 km
  • 51 km
  • 52 km
  • 2 km
  • 50 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um Altea

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.