Glæsilegt einbýli með sundlaug og útsýni yfir hafið í Cumbre del Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Þessi eign er ekki í boði


3

2

657.00 m2

1150.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4649831

Lúxuseinbýli með undurfögru útsýni yfir hafið í einstakri íbúabyggð í Cumbre de Sol í Costa Blanca Norte. Fullkomin staðsetning sem gefur kost á að njóta kyrrðar og öryggis í einstakri íbúabyggð umkringd náttúru, í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Moraig-strönd, Calas Llebeig og Los Tiestos, að ekki sé minnst á aðgengi að öllum mögulegum þægindum.  Byggðin er í nágrenni við ýmisskonar þjónustu, þar á meðal verslunarkjarna með matvörubúðum, hárgreiðslustofu, apóteki, börum, veitingastöðum og alþjóðlegum framhaldsskóla. Auk þess er mikið úrval íþróttaaðstaða eins og tennisvellir, reiðvöllur og ýmsar gönguleiðir. Þökk sé framúrskarandi vegakerfi er hægt að komast fljótt og örugglega á nálæga ferðamannastaði, eins og Moraira sem er í 10 mínútna fjarlægð, Jávea í 15 mínútna fjarlægð og Calpe í 30 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í um það bil klukkutímafjarlægð. 

Glæsilegt einbýli á einni hæð auk kjallara, með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Húsið er hannað af kostgæfni með fullnýtingu á dagsbirtu og umhverfi í huga, svo hægt er að njóta sólar allt árið um kring og stórkostlegs útsýnis yfir hafið. Dagrýmið er allt á einni og sömu hæðinni sem veitir aukin þægindi. Dagrýmið er í opnu rými og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu með stórum gluggum svo íbúðin blandast saman við útisvæðið. Á útisvæðinu er að finna stórkostlega sundlaug og fallegan Miðjarðarhafsgarð. Úr stærsta svefnherberginu er ótrúlegt útsýni yfir hafið, sérbaðherbergi og svalir. Önnur svefnherbergi eru með innbyggðum skápum og sameiginlegu baðherbergi. 100 m2 kjallarann er hægt að hanna eftir þörfum eiganda, bæta við svefnherbergjum eða hvað það sem óskir standa til. Tvær svalir og bílastæði fylgir með eigninni. 

Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftræstingu um stokk, hita í gólfum, rafknúnum gardínum, innri og ytri lýsingu, viðvörunarkerfi með vídeói, snjalltækjum, rafknúnu hliði fyrir ökutæki, ljósspennukerfi fyrir húsnæði sem nota 5,5 kw og hleðslustöð fyrir rafbíla.

Bjart einbýli með undurfögru útsýni yfir hafið, fullkomið til að lifa til fulls við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 96 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.