Lúxuseinbýli með stórkostlegu útsýni yfir hafið í Cumbre del Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

frá 287,291,400 kr
frá 1.914.000€

3

2

613.00 m2

963.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4652285

Lúxuseinbýli með dásamlegu útsýni í Cumbre del Sol, í einstakri íbúabyggð í Costa Blanca Norte. Fullkomin staðsetning í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Playa Moraig og fallegu ströndunum Calas Llebeig og Los Tiestos. Íbúabyggðin er hluti af afgirtu hverfi með stýrðum aðgangi og þar er að finna ýmis konar þjónustu, eins og verslunarsvæði með matvöruverslun, hárgreiðslustofu, apótek, bari og veitingastaði og alþjóðlegan framhaldsskóla. Auk þess er mikið úrval íþróttaaðstaða eins og tennisvellir, reiðvöllur og ýmsar gönguleiðir. Cumbre del Sol er mjög nálægt mikilvægum ferðamannastöðum, Moraira er í 10 mínútna fjarlægð, Jávea í 15 mínútna fjarlægð og Calpe í 30 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í um það bil klukkutímafjarlægð. 

Glæsilegt hús með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Þökk sé staðsetningunni er undurfagurt útsýni yfir hafið, sjóndeildarhringinn sem ber við Calpe og náttúruperluna Peñón de Ifach. Íbúðarýmið sjálft er allt á einni og sömu hæðinni, sem veitir aukin þægindi, og er því skipt í tvennt. Einu megin er opið rými, með eldhúsi, borðstofu og stofu með aðgangi að yfirbyggðum svölum, auk gestasalernis og þvottahúss. Öðru megin er hvíldarrýmið með svefnherbergjunum þremur, það stærsta með fataherbergi og sérbaðherbergi, hin svefnherbergin deila baðherbergi en eru með rúmgóðum skápum. Öll svefnherbergin eru með beinan aðgang að svölum með fallegu útsýni yfir hafið. Neðri hæð eða kjallara er skipt upp í nokkur rými, bílskúr með tveimur stæðum, salerni, geymslu og útgengu rými sem hægt er að nota eftir eigin höfði. Fullkomins veðurfars Costa Blanca er hægt að njóta á stórum svölum og í nokkrum ólíkum görðum.  

Eignin er byggð með fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftræstingu um stokk, hita í gólfum, rafknúnum gardínum, innri og yrti lýsingu, viðvörunarkerfi með vídeó, snjalltækjum, rafknúnu hliði fyrir ökutæki, hliði fyrir gangandi vegfarendur, sjálfbæru ljósspennukerfi fyrir húsnæði sem nota 5,5 kw og hleðslustöð fyrir rafbíla.

Hús á einstökum stað á Costa Blanca með ægifögru útsýni, fullkomið til að njóta lífsins lystisemda við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 95 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.