Íbúðir við golfvöllinn í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 46,221,000 kr
frá 310.000€

2

2

82.02 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4655493

Ný bygging við golfvöllinn á lúxusdvalarstaðnum La Cala Resort í Mijas Costa. Ein besta golfvallabyggðin í allri Andalúsíu, umkringd náttúru og með þrjá stórkostlega 18 holu velli, 4 stjörnu hótel, lúxusspa, klúbb, þrjá framúrskarandi veitingastaði og frábæra íþróttaaðstöðu. Í aðeins átta mínútna fjarlægð frá La Cala de Mijas, fullkomin staðsetning, nærri fallegum ströndum og allri mögulegri þjónustu eins og verslunarmiðstöðvum, matvöruverslunum, heilsugæslu, bönkum og fjölda tómstunda og bara. Auk golfsins er að finna mikið úrval ævintýraíþrótta, eins og svifflug og allskonar vatnaíþróttir. Fullkomin tenging við AP-7 og A-7 og nálægð við mikilvæga ferðamannastaði á Costa del Sol, eins og gamla bæinn í Marbella og Fuengirola í aðeins hálftíma fjarlægð, Puerto Banús í 35 mínútna fjarlægð og Málaga og flugvöllinn í aðeins 40 mínútna fjarlægð. 

Í boði eru mismunandi íbúðir með tveimur eða þremur herbergjum og tveimur baðherbergjum, eins og neðri hæðir eða miðhæðir með stórum svölum, risíbúðir með einkasólstofu og rishæðir á tveimur hæðum með tveimur svölum. Eftir því hvernig íbúðirnar snúa er hægt að velja um útsýni sem nær yfir alla byggðina, golfvellina, vatnið, sundlaugina og /eða dalinn. Nokkrar íbúðir eru með útsýni yfir hafið. Náttúruleg birta leikur stórt hlutverk í íbúðunum en hún er nýtt til hins ýtrasta, með stórum svölunum, til að geta notið þess besta í sólinni, allan daginn. Íbúðirnar eru allar með opnu rúmgóðu rými, með eldhúsi, borðstofu og stofu með stórum gluggum þaðan sem útgengt er á stórkostlegar svalir. Stærsta svefnherbergið er með sérbaðherbergi og sumar íbúðirnar eru með aðgang að svölum. Stærsta svefnherbergið í tveggja hæða risíbúðunum er á neðri hæðinni og er með sér svölum.

Í íbúðunum er eldhús fullbúið heimilistækjum með lítilli orkueyðslu, loftræsting fyrir hita og kulda um stokk og varmadæla, rafknúin álgluggatjöld í svefnherbergjum, gólfefni á svölum sem kemur í veg fyrir að það verði hált, geymsla og eitt eða tvö bílastæði, í kjallara eða úti, ásamt hleðslutæki fyrir rafbíla.

Íbúabyggðin er í hjarta golfvallarins, með einstöku 3000 m2 sameiginlegu útisvæði, með 600 m2 sundlaug, barnasundlaug, sturtum og salerni, leiktæki, yfirbyggðu svæði og stórum, grænum svæðum. Framleiðsla endurnýjanlegs rafmagns er um sameiginlegt ljósspennukerfi, að hluta til fyrir notkun í byggingunni.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 40 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.