Einbýli á einni hæð auk kjallara, sólstofu og einkasundlaugar í Santa Rosalia Lake & Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Þessi eign er ekki í boði


3

2

154.00 m2

338.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4708725

Einstakar eignir á dvalarstaðnum frábæra Santa Rosalia Lake & Life Resort, á Costa Cálida. Um er að ræða sérstakt íbúahverfi sem byggt er í kringum manngert, kristal tært vatn. Byggðin er hönnuð sem sumarleyfisstaður, með ýmis konar aðstöðu og tómstundum fyrir íbúana, eins og strandarklúbb, bryggju fyrir vatnaíþróttir, minigolf, hjólreiðar, blakbolta, jóga o.s.frv. Byggðin er afgirt, með öryggisgæslu allan sólarhringinn og stýrðum aðgangi, svo næði er að fullu tryggt. Nálægasta þorpið er Alcázares í innan við tíu mínútna fjarlægð, þar sem finna má úrval þjónustu og þæginda, auk þess að geyma dásamlegar strendurnar. Frábært vegakerfi gefur kost á að komast auðveldlega til borga á svæðinu, eins og Murcia á 40 mínútum, Cartagena á 25 mínútum og Alicante á rúmum klukkutíma.

Í boði eru mismunandi einbýli á einni hæð, með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbegjum, sólstofu og kjallara. Eignin er í laginu eins og L, sem tryggir hagkvæma tengingu á milli dag- og svefnrýmis. Rúmgott dagrýmið samanstendur af nútímalegu eldhúsi, borðstofu og stofu í opnu rými, þaðan sem útgengt er í garðinn, pallinn og sundlaugina. Hjónaherbergi með sérbaðherbergi, hin svefnherbergin og sameiginlegt baðherbergi snúa einnig að garðinum. Innangengt er í sólstofu og kjallara um útistiga. Sólstofan er einnig með útieldhúsi, svo þar er að finna fullkomið rými til að njóta Miðjarðarhafsveðurs allan daginn. 120 fm kjallarinn er margnota rými, þar er að finna enska pall (patio inglés), keramík-flísar á gólfi, slétta veggi og inntöku fyrir vatn og ljós. Fallegur garður með gervigrasi, trjám og Miðjarðarhafsgróðri, með stórri sundlaug og stíg umhverfis húsið.

Eignirnar bjóða upp á að lokafrágangur sé sérsniðinn að þörfum eiganda, öll húsin eru með loftræstingu um stokk, heimilistækjum, ytri og innri lýsingu, sólarrafhlöðum, vökvunarkerfi og hálf yfirbyggðu bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla.

Gegn viðbótargreiðslu er mögulegt að breyta kjallaranum í séríbúð, eða leikjasal, kvikmyndasal, vínkjallara, leikfimisal eða hvað það sem kemur til hugar. Aðrir valkostir geta verið gólfhiti á baðherbergjum eða í öllu húsinu, útieldhús, sundlaug með sérstakri hönnun o. s. Frv. Ráðfærið ykkur við sölumann um aðra valkosti!

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 22 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.