Einbýli á einni hæð með einkasundlaug og sólstofu í Roldán, Murcia

Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco

frá 38,425,600 kr
frá 256.000€

2

2

78.00 m2

194.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4734211

Nýr einbýlishúsakjarni í íbúðahverfinu Roldán sem tilheyrir Torre Pacheo á Costa Calida ströndinni. Góð þjónusta er á svæðinu en stutt er að sækja frekari þjónustu til bæjanna Torre Pacheo og Loz Alcazares. Af nægu er að taka fyrir útivistarfólk, fjöldi golfvalla er á svæðinu, s.s. La Tore Golf, þá er fjöldi gönguleiða til fjalla og frábær aðstaða til vatnasports á Mar Menor ströndinni sem er í um 20 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið er nálægt A-30 og AP7 hraðbrautunum og er því einfalt að aka til stærri borga á við Murcia og Cartagena en sá akstur tekur um 25 mínútur. Til Torrevieja eru um 40 mínútur og u.þ.b. klukkustund til Alicante. Til flugvallarins í Murcia eru um 20 mínútur og um klukkustund á alþjóðaflugvöllinn í Alicante.

Í kjarnanum eru einbýli á einni hæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk sólstofu. Eldhúsið, stofan og borðstofan eru í opnu rými sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Útistigi frá garðinum leiðir til 84m2 sólstofu þar sem kjörið er að njóta Miðjarðarhafs lífstílsins til fyllstu. Húsin eru vel búin og eru hjónasvíturnar með baðherbergi inn af. Þá er eitt húsanna á tveimur hæðum, með 2 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum.

Húsin eru öll með loftkælingu, heimilistækjum, full búnu baðherbergi, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug og bílastæði. Með tilliti til verðs, fylgifés og staðsetningu er auðvelt að fullyrða að þessi hús eru kjörin bæði sem sumarhús og heimili.  

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco

Torre Pacheco tilheyrir Murcia og liggur skammt frá bænum Los Alcázares við Mar Menor. Svæðið er þekkt fyrir áberandi vindmyllur og úrval golfvalla en bærinn sjálfur býður upp á gott úrval af daglegri þjónustu, börum og veitingastöðum ásamt heilsugæslu og tveimur skólum og er þannig kjörinn kostur fyrir búsetu allt árið um kring.

Þótt um sé að ræða svæði inni í landi eru strendur Mar Menor í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, þar sem margar vatnaíþróttir eru í boði, svo sem köfun, snorkl og siglingar. Medland býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Torre Pacheco, allt frá íbúðum til einbýlishúsa, sem staðsettar eru nálægt daglegri þjónustu, ýmsum golfvöllum og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni.

  • 12 km
  • 25 km
  • 22 km
  • 15 km
  • 31 km
  • 27 km

Nánari upplýsingar um Torre Pacheco

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.