Íbúð á tveimur hæðum með einkagarði og kjallara í Cancelada, Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 65,111,970 kr
frá 436.700€

3

3

116.50 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4786338

Nýr kjarni einstakra íbúða sem eru einungis í 5 mínútna fjarlægð frá ströndinni í Cancelada, sem telst eitt besta svæði Gullnu mílunnar í Estepona. Bærinn Cancelada býður upp á mikla þjónustu, s.s. matvöruverslanir, búðir, skóla, veitingastaði og skemmtun af ýmsu tagi. Svæðið er afar vinsælt á meðal golfara og býður upp á marga af bestu golfvöllum Andalúsíu; Flamingos Golf, Cancelada Club Golf, El Campanario Golf & Country House, og Atalaya Golf & Country Club. Svæðið er einnig þekkt fyrir útivist, s.s. góðar gönguleiðir, hjólastíga, hestaferðir og reiðnámskeið hjá Costa del Sol Equestrian Art School, sem og vatnaíþróttir. Strandlengjan í Estapona er um 20 km löng og er á milli Puerto Banús og Sotogrande, sem eru tvær umsvifamestu hafnirnar á Costa del Sol svæðinu. Hraðbrautirnar AP7 og A7 tengja svæðið vel saman og er um 15 mínútna akstursfjarlægð til Puerto Banús og miðju Estepona, til Marbella er um 25 mínútur og til Fuengirola er um 40 mínútur. Alþjóðaflugvellirnir í Malaga og Gíbraltar eru í um 50 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum,  fáanlegar í mismunandi útgáfum; á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum, verönd og einkagarði, þakíbúðir á þremur hæðum með 3 svefnherbergjum og stórri verönd, eða verönd og þaksvölum. Allar íbúðirnar eru með eldhúsið, stofu og borðstofu í einu opnu rými sem opnast út á verönd, og eru flestar íbúðirnar með sjávarútsýni

Byggðar úr úrvals byggingarefnum og eru með forútbúinni loftkælingu sem bæði hitar og kælir, hljóðdempandi tvöföldu gleri, myndavélasíma í lit sem tengist húsverði, geymslu og bílastæði.

Kjarninn er alveg lokaður með hliði og er með fjölda sameiginlegra rýma, með stórri sundlaug, rúmgóðum grænum svæðum sem eru hönnuð til að þurfa litla vökvun, hjólastæði, úti íþróttasvæði, tvo tennisvelli, og Boccia/kúluspilsvöll. Í klúbbhúsinu er gufubað og spa-svæði, fullbúin líkamsræktaraðstaða, íverusvæði og kaffitería með stórri verönd. Þessi kjarni er hannaður með orkusparnað í huga og er með A í orkunotkun.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 69 km
  • 10 km
  • 40 km
  • 2 km
  • 17 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.