Einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum, þakverönd og sundlaug í La Herrada, Los Montesinos

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos

frá 48,482,300 kr
frá 323.000€

3

3

99.05 m2

140.15 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4936011

Nýr kjarni einbýlishúsa í La Herrada, sem er vinsælt íbúðahverfi í Los Montesinos á suðurhluta Costa Blanca. Bærinn er gróinn með mikið úrval af þjónustu, s.s. úrval matvöruverslana, bankar, apótek, barir, veitingastaðir, heilsugæsla og skóla. Stutt er að fara til Ciudad Quesada, Guardamar del Segura, Torrevieja og Orihuela Costa. Á svæðinu er einnig úrval af alls kyns afþreyingu, s.s. La Marquesa og La Finca golfvellirnir, vatnsrennibrautargarður, og  Habaneras og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðvarnar. Þá eru hinar stórkostlegu strendur Guardamar og Torrevieja eingöngu í um 10-15 mínútna akstursfjarlægð. Hrauðbrautin AP-7, CV-905 og N-332 vegirnir gera það að verkum að einfalt er að komast á milli staða og borga en flugvöllurinn í Alicante er í um 40 mínútna akstursfjarlægð.

Kjarninn býður upp á einbýlishús á pöllum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, sem dreifast á 2 hæðir auk þakverandar. Jarðhæðin er með eldhúsinu, borðstofunni og stofunni sem opnast út á verönd þar sem er yfirbyggð pergóla og sundlaugarsvæðið. Á hæðinni er einnig tvöfalt svefnherbergi og baðherbergi. Á næstu hæð eru tvær hjónasvítur með baðherbergi inn af, og útfrá öðru þeirra er útgengt út á sér svalir/verönd. Þakveröndin er kjörin til að njóta útsýnisins og milda loftslagsins á Costa Blanca.

Kjarninn býður einnig upp á fjögur einbýlishús á einni hæð auk þakverandar með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á lóðum sem eru 400-405m2. Húsin eru með opnu skipulagi sem sameinar eldhúsið, stofuna og borðstofuna sem opnast út á yfirbyggða verönd og sundlaugarsvæðið. Hjónaherbergið opnast einnig út á verönd og er með sér baðherbergi og fataherbergi. Aukalega er hægt að fá stærri sundlaug ef komið er að kaupunum nægilega snemma. Kannið það hjá sölufulltrúa okkar.

Húsunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, fullbúnir fataskápar, rafknúnar gardínur, öryggiskerfi, sundlaug, fullgerður garður með gervigrasi og bílastæði.

See more...

  • sundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos

Los Montesinos er lítið þorp við Suður Costa Blanca, í um 10 mín. akstursfjarlægð frá Torrevieja.

Þetta er fullkomið þorp fyrir þá sem vilja setjast að, með allri nauðsynlegri þjónustu, umkringt ökrum og nálægt ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið í Los Montesinos:

  • 33 km
  • 16 km
  • 18 km
  • 8 km
  • 9 km
  • 6 km

Nánari upplýsingar um Los Montesinos

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.