Lúxus parhús við ströndina með þakverönd og einkasundlaug í El Campello

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello

Þessi eign er ekki í boði


3

4

450.00 m2

424.46 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3456233

Kjarni lúxus parhúsa við Muchavista ströndina, norður Costa Blanca. Nærliggjandi bær, El Campello, býður upp á allar daglegar nauðsynjar, eins og stórmarkaði, verslanir, banka og apótek, en nokkrir barir og veitingastaðir við ströndina eru í göngufæri. Á svæðinu er einnig almenningssamgöngukerfi sem býður upp á skjótan aðgang að golfi og verslunum og aðeins 25 mínútur tekur að aka til Alicante flugvallar.

Parhúsin eru á þremur hæðum, auk þakverandar og kjallara/bílskúrs og eru með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Aðalhæðin samanstendur af hálf sjálfstæðu eldhúsi og stórri opinni setustofu og borðkrók sem opnast út á verönd og garðsvæði með einkasundlaug. Á fyrstu hæðinni eru 2 svefnherbergi, baðherbergi og sameiginleg verönd. Efsta hæðin er frátekin fyrir hjónaherbergi, með sér baðherbergi og fataherbergi. Þakveröndin er svo kjörið svæði til að slaka á, með nuddpotti fyrir þrjá einstaklinga. Kjallaranum er skipt í bílskúr með plássi fyrir allt að 3 bíla, geymslu og þvottahús, baðherbergi og 2 fjölnota herbergi sem hægt er að nýta eftir þörfum, t.d. fyrir líkamsræktaraðstöðu, heimabíó og/eða sem auka svefnherbergi.

Í kjarnanum er öryggi allan sólarhringinn með öryggismyndavélum á við útjaðar og á sameiginlegum svæðum. Í sameign eru garðar og padel völlur.

Húsin hafa verið hönnuð með lúxusgæðum og þeim fylgja loftkæling og gólfhiti, snjallheimakerfi, lyfta sem tengir kjallara og aðra hæð, innri stigi að þakveröndinni, saltvatns sundlaug með fossi og bílskúr fyrir þrjá bíla með sjálfvirkri bílskúrshurð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílageymsla í kjallara
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello

Campello er borg í hjarta Costa Blanca og mjög nálægt stærstu borgunum, í 10 km. fjarlægð frá Alicante og 30 km. frá Benidorm. Fiskiþorp sem á síðustu árum hefur aðlagað sig breyttum áherslum og er nú vinsæll fyrsta flokks ferðamannastaður.

Meðfram 23 km. langri ströndinni, sem er sú lengsta á Costa Blanca, er að finna margskonar íbúðabyggðir með miklu fasteignaframboði. Í gamla miðbænum og nálægt ströndinni einkennist úrvalið af gæðum á góðu verði. Í útjaðri borgarinnar eru nýlegar íbúðabyggðir og eru það aðallega einbýli og raðhús, mörg hver með ótrúlegu sjávarútsýni. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í El Campello

  • 28 km
  • 11 km
  • 12 km
  • 0 km
  • 10 km
  • 27 km

Nánari upplýsingar um El Campello

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.