Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Þessi eign er ekki í boði
REF 2163212
Lúxus einbýlishús í spænska bænum Moraira, en svæðið er talið vera eitt það fallegasta við norður Costa Blanca. Bærinn liggur milli Calpe og Javea, umlukinn fallegri náttúru og nýtur útsýnis yfir Miðjarðarhafið. Öll dagleg þægindi eru í stuttri akstursfjarlægð, sem gerir staðsetninguna tilvalda fyrir hvort tveggja; dvöl í fríum eða búsetu allt árið um kring.
Húsið er á tveimur hæðum, byggt á 1.000m2 lóð og snýr í suður. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, 5 baðherbergi, gestasalerni, lyfta og kjallari. Rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í amerískum stíl eru í húsinu og stórar glerhurðar í stofu opnast útá stóra verönd með svokallaðri infinity sundlaug, þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hafið. En-suite svefnherbergi, með fataherbergi má einnig finna á þessari hæð. Aðalinngangur er á efri hæð hússins og þar eru 3 svefnherbergi til viðbótar. Hvert þessara svefnherbergja hefur baðherbergi og aðgang að lítilli verönd, einnig með útsýni yfir hafið. Gríðarstór kjallari er í húsinu, 132m2, og þar má vera með auka stofu. Í kjallaranum er baðherbergi, nuddpottur og gufubað.
Húsið er hannað á nútímalegan hátt og því fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, gólfhiti, lýsing, sundlaug og stórt bílastæði fyrir tvær bifreiðar á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Moraira er fallegt Miðjarðarhafsþorp á milli Calpe og Jávea, og ber af vegna náttúrulegra stranda og kristalstærra víka. Fasteignaframboðið í Moraira samanstendur aðallega af einstökum þéttbýliskjörnum með lúxuseinbýlum. Einn af eftirlætisstöðum viðskiptavina sem leita eftir fyrsta flokks húsnæði við ströndina.
Moraira veitir íbúum öryggi, þjónustu, gott loftslag og óviðjafnalegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Skoðið húsnæði við ströndina í Moraira:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum