Íbúðir með sjávarútsýni, 1000m frá ströndinni á Benidorm

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm

frá 52,985,300 kr
frá 353.000€

2

2

75.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4856182

Einstakur íbúðakjarni,  einungis 1km frá ströndinni á Benidorm. Til viðbótar við frábært sjávarútsýnið er kjarninn með flott útsýni yfir Las Rejas golfvöllinn og ýmis græn svæði. Frábær staðsetning með allri þjónustu og mjög nálægt strandgötunni með kaffihúsum, börum og veitingastöðum. Gamli bærinn er stutt frá með sínum heillandi mjóu strætum, fallegum byggingum og verslunum. Borgin býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu, s.s. Terra Mitica skemmtigarðinn og Aqualandia vatnsrennibrautagarðinn auk vatnasports af ýmsu tagi, og tækifæri til siglinga. Þá er þar að finna líflegt skemmtanalíf, bari og diskótek, og Benidorm Palace. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu, þ.e. við AP-7 og N-332 vegina, sem tengja Benidorm við aðrar borgir Costa Blanca og flugvöllinn í Alicante sem er í um 40 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 1, 2 og 3 svefnherbergjum, og þakíbúðir með 3 og 4 svefnherbergjum og þakverönd. Allar íbúðirnar eru með stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými sem opnast út á verönd sem snýr í suður. Hjónaherbergin í stærri íbúðunum er með baðherbergi inn af, og opnast út á verönd. Mögulegt er að velja innréttingar úr miklu úrvali. Íbúðunum fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum og eftir stærð íbúðar, ýmist eitt eða tvö bílastæði. Aukalega er hægt að fá geymslu og auka bílastæði með íbúðunum.

Sameiginlega svæðið  býður upp á falleg græn svæði með innlendum trjám og plöntum sem tryggir litla vatnsnotkun. Þá eru tvær saltvatnslaugar á svæðinu, ein fyrir fullorðna og önnur fyrir börn, með strandþema, kjörið til að njóta loftslagsins á Costa Blanca. Þá eru tveir heitir pottar, salerni, leikvöllur, paddle- og tennisvöllur, og fjölnota íþróttavöllur með körfuboltahring. Innisvæðið er með fullbúna líkamsrækt á jarðhæð með stórum gluggum sem hleypa birtu inn og er með útsýni yfir sameiginlega svæðið. Þá er sérstakt svæði fyrir reiðhjól, bílakjallari og bílastæði utandyra. Kjarninn er algjörlega lokaður sem tryggir hámarks öryggi íbúa.

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm

Benidorm er talin vera höfuðborg Costa Blanca. Einskoraður leiðtogi sem áfangastur fyrir fríið, en einnig mikilvægur kjarni búsetuferðaþjónustu á Spáni.

Háar byggingar bera við himininn í Benidorm, og því er borgin oft kölluð „New York Miðjarðarhafsins“. Þar er að finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er mjög fjölbreytt, bæði í gerðum og verðum. Fjölbreytt úrval frístunda gera það að verkum að Benidorm er borg fyrir alla. Hvort sem leitað er eftir næturfjöri, fjölskyldustundum eða afslöppun og rólegheitum, þá er endalausa möguleika að finna í Benidorm. Hvort sem um fjárfestingu eða skemmtun er að ræða er öruggt að Benidorm gefur vel af sér fyrir þá sem kaupa fasteign við ströndina. Hér má sjá fasteignaframboðið við ströndina í Benidorm

  • 44 km
  • 37 km
  • 38 km
  • 1 km
  • 36 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Benidorm

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.