Hornhús með kjallara og einkasundlaug í La Finca Golf

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

frá 63,042,000 kr
frá 420.000€

3

3

191.06 m2

271.34 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4661353

Ný íbúðabyggð með glæsilegum íbúðum með einkasundlaug í La Finca Golf, Algorfa Dvalarstaður með stórkostlegum 18 holu golfvelli, einstökum golfklúbbi með allskonar veitingastöðum, 5 stjörnu hóteli og verslunarkjarna þar sem finna má fjölda tómstunda. Í fimm mínútna aksturfjarlægð frá þéttbýliskjörnum eins og Algorfa eða Cuidad Quesada, þar sem finna má enn meira úrval þjónustu. Strendurnar í Guardamar og Torrevieja eru í aðeins 15-20 mínútna akstursfjarlægð.  Íbúabyggðin er vel tengd við AP-7 hraðbrautina svo hægt er að komast á alþjóðlega flugvöllinn í Alicante á aðeins 35 mínútum. Fullkominn staður fyrir þau sem leita að íbúð fyrir fríið eða til að búa í allt árið um kring.

Í boði eru glæsilegar íbúðir með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum, í mismunandi stærðum og gerðum; raðhúsum eða einbýli. Allar eru þær á tveimur hæðum auk kjallara og einkasundlaugar. Einbýlin eru í boði með eða án einkasólstofu.

Allar eru íbúðirnar með opnu, rúmgóðu rými á neðri hæð, með stofu, borðstofu og eldhúsi og stórum gluggum þaðan sem útgengt er í garðinn. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með baðherbergi, þvottahúsi og sumar íbúðir eru einnig með gestasalerni. Hin svefnherbergin tvö eru á efri hæðinni, bæði með baðherbergjum og það stærra með aðgang að verönd.  Útisvæðið er fullkomið til að njóta veðurfarsins, hér um bil allt árið um kring, með svölum og einkasundlaug.

Kjallara er skipt upp í gestasalerni og tækjageymslu, auk rýmis sem eigandi getur hannað eftir eigin höfði, eins og til dæmis gestaíbúð, leikfimisal eða nýtt í það sem hugurinn girnist. Raðhúsin eru einnig með opnu holi á þessari hæð. 

Allar íbúðirnar eru með eldhús fullútbúið heimilistækjum, loftræstingu um stokk (á hæðunum), með hitastillingu, loftvarmakerfi, tvöfalt gler frá Guardian Sun, innbyggðum skápum, rafknúnum gluggatjöldum í herbergjunum, mynddyrasíma, einkasundlaug með upphitun, útisturtu, fjarstýrt, rafknúið hlið og kjallara sem er fullbúinn með loftræstingu. Öllum íbúðum fylgir bílastæði innan lóðar.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.

Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.

  • 49 km
  • 18 km
  • 15 km
  • 12 km
  • 12 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um La Finca

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.