Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 4097196
Ný einbýlishús í Benijófar, heillandi spænskum bæ, sem býður upp á fjölskyldustemningu og gott úrval þjónustu ásamt fínum ströndum við nærliggjandi bæi Guardamar og Torrevieja. Tilvalið fyrir þá sem eru að leita að friðsælu umhverfi með þægindum þéttbýlis í næsta nágrenni.
Tveggja hæða einbýlishús í Miðjarðarhafsstíl, byggt á 255m2 lóð, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og kjallara. Á aðalhæðinni er opin setustofa, borðstofa og eldhús og rýmið opnast út á verönd og garð. Einnig er hjónaherbergi og baðherbergi á aðalhæð. Á efri hæð er baðherbergi og 2 svefnherbergi, bæði með útgengi út á verönd með útsýni yfir garðinn. Hægt er að sníða kjallarann eftir þörfum, t.d. sem auka setustofu, skemmtiherbergi eða jafnvel auka svefnherbergi með baðherbergi.
Húsið er byggt með gæðaefnum og náttúrusteinn er á framhlið. Innifalið við afhendingu er foruppsetning fyrir loftkælingu, fataskápar, LED lýsing innandyra og utan, garður í Miðjarðarhafsstíl og bílastæði á lóð. Gegn aukakostnaði má byggja einkasundlaug.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum