Íbúðir með 3 svefnherbergjum og verönd nálægt höfninni í Guardamar

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar

Þessi eign er ekki í boði


3

2

81.56 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4932484

Nýr íbúðakjarni í Guardamar del Segura, nálægt höfninni og um 900 m frá ströndinni. Guardamar býður upp á alla mögulega þjónustu allt árið um kring, auk frábærra stranda. Fjöldi tækifæra til afþreyingar er á svæðinu, s.s golfvellir, vatnsrennibrautargarður, fjölnota íþróttahús og alls kyns vatnasport. Kjarninn er í um 15 mínútna fjarlægð frá Lagunas de la Mata náttúrugarðinum með fjölda göngu- og hjólastíga umhverfis saltlónið. Svæðið er vel tengt vegakerfinu og er Santa Pola, Torrevieja og Orihuela Costa á um 30 mínútna radíus við svæðið. Til Alicante er um 40 mínútur og um 30 mínútur á flugvöllinn. Þetta er kjörið svæði sem orlofshús sem og heimili allt árið um kring.

Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergjum, fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir og miðhæðir sem eru með 2 svefnherbergjum og verönd, íbúðir á 2 hæðum með 3 svefnherbergjum og þakíbúðir með 2 svefnherbergjum og þakverönd. Allar eru þær bjartar með fallegu útsýni, sumar til sjós en aðrar yfir furuskóglendi. Allar íbúðirnar eru með eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými sem opnast út á verönd þar sem hægt er að njóta miðjarðarhafsloftslagsins. Hjónaherbergin eru með baðherbergi inn af.

Íbúðunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, geymsla, og bílastæði annað hvort í bílakjallara eða undir berum himni. Þakíbúðirnar eru með innbyggt grill á þakveröndinni.

Kjarninn er með ýmis sameiginleg svæði auk stórrar sundlaugar með barnasvæði og heitum potti, græn svæði með gervigrasi og reiðhjólastæði.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar

Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.

Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar

  • 33 km
  • 25 km
  • 13 km
  • 1 km
  • 17 km
  • 11 km

Nánari upplýsingar um Guardamar

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.