TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Íbúðir á jarðhæð með einkaverönd/garði í Villamartín

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin

frá 37,329,870 kr
frá 248.700€

2

2

122.98 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4813086

Nýr íbúðakjarni í Los Dolses, íbúðahverfi í Orihuela Costa á milli Villamartín Golf og Playa Flamenca. Kjarninn er umkringdur þjónustu af ýmsu tagi, s.s  matvöruverslunum, börum, veitingastöðum, bönkum og hárgreiðslustofum, svo dæmi séu tekin. Það tekur einungis 5 mínútur að aka að verslunarmiðstöðinni við Zenia Boulevard og það er stutt að ganga á laugardagsmarkaðinn sem margir þekkja. Stórkostlegar strendur Orihuela Costa, eins og Playa Flamenca og La Zenia eru í stuttri akstursfjarlægð frá kjarnanum. Fyrir útivistarfólk er af nægu að taka í nágrenninu, það eru 3 golfvellir á innan við 10 km radíus frá kjarnanum og fjölnota íþróttavellir eru einungis í 5 mínútna akstursfjarlægð, með fótboltavöllum, inni sundlaug og ýmsu öðru af því tagi.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem eru fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir með einkaverönd/garði, miðhæðir með yfirbyggðri verönd og þakíbúðir með þakverönd og sjávarútsýni. Allar íbúðirnar eru með stofuna, borðstofuna og eldhúsið í opnu rúmgóðu rými með litlu þvottaherbergi inn af eldhúsinu. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af og hurð út á verönd. Þakíbúðirnar eru með stiga innahúss sem leiðir upp á þakið þar sem er að finna “pergólu” úr við. Þá eru tengi til að setja upp útieldhús á þakveröndinni.

Íbúðunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, fullbúnir fataskápar, Smart kerfi og einkabílastæði með tengi fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Kjarninn býður upp á framúrskarandi sameiginleg svæði, s.s. fullbúin græn svæði, sundlaug fyrir fullorðna og börn, strandsvæði við sundlaugina, útisturtur, leikvöll, fjölnota æfingartæki utanhúss, hjólastæði og bílakjallara. Á sundlaugarsvæðinu eru nokkur inni svæði, s.s. salerni, gufubað og stór salur. Öll grænu svæðin eru með gervigrasi og plöntum sem lækkar viðhalds – og vökvunarkostnað.
See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin

Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.

Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.

  • 43 km
  • 4 km
  • 23 km
  • 2 km
  • 4 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Villamartin

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.