Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
REF 906395
Nýr kjarni staðsettur nálægt golfvellinum í Villamartin, en á svæðinu er gott úrval þjónustu. Ströndin La Zenia er í aðeins 5 mínútna fjarlægð með bíl sem og Las Ramblas Golf og Campoamor golfvöllurinn.
Húsin eru á tveimur hæðum með þakverönd. Öll hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, með möguleika á að fjarlægja 1 svefnherbergi, sem gerir stofuna stærri. Jarðhæðin einkennist af opinni hönnun og þaðan er aðgangur að veröndinni og garðinum. Á lóð er bílastæði og mögulegt er að koma fyrir lítilli sundlaug fyrir aukakostnað. Kjarnanum fylgir sameiginlegt sundlaugarsvæði. See more...
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðabyggð við Orihuela Costa sem byggð var við samnefndan gólfvöll, Golfklúbbinn Villamartín. Völlurinn var byggður og hannaður af P. Puttman, og vígður árið 1972. Mikil gróðursæld hefur dafnað á þeim tæplega 50 árum sem liðið hafa frá opnun vallarins, sem gerir umhverfi hans einstaklega fagurt.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í náttúrlegu umhverfi, nálægt ströndinni sem er í 5 km. fjarlægð, er Villamartín án efa besti kosturinn á Costa Blanca. Hér eru fasteignirnar í Villamartín:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum