Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 2467391
Raðhús í spænska bænum Pilar de la Horadada, sem staðsettur er við suður Costa Blanca. Öll nauðsynleg þjónusta er skammt frá og strendur Torre de la Horadada eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð. Kjörið fjárfestingartækifæri, fyrir dvöl í fríum eða búsetu allt árið um kring.
Raðhús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, bílskúrskjallara og þakverönd. Jarðhæðin samanstendur af opinni stofu og borðstofu, sjálfstæðu eldhúsi, gestasalerni, verönd út af stofunni og patio út frá eldhúsinu. Öll 3 svefnherbergin eru á efri hæð, þar sem hjónaherbergi hefur sér baðherbergi, fataherbergi og litla verönd. Hægt er að komast í bílskúrs-kjallarann um stiga inni í húsinu. Í patio er lagt fyrir þvottavél og þaðan má nálgast sameiginlegt svæði og sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum