Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
REF 3067304
Nýr kjarni í Pilar de la Horadada, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Torre de la Horadada. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta, og aðstaða til íþróttaiðkana er í næsta nágrenni. Bein leið er frá kjarnanum niður til Torre de la Horadada strandarinnar, tilvalin til hjólreiða.
Í kjarnanum eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð með garði eða efstu hæð með þakverönd. Hver íbúð samanstendur af rúmgóðri stofu, eldhúsi og borðstofu. Stórar glerhurðar opnast útá stóra verönd. Fataskápar og baðherbergi eru í báðum svefnherbergjum.
Einnig eru í boði raðhús með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd.
Á sameiginlegu svæði er sundlaug, garður og leiksvæði fyrir börn ásamt bílastæði. Allar íbúðir á jarðhæð og raðhúsin, hafa bílastæði á lóð, en íbúðir á efstu hæð hafa bílastæði á sameiginlegu svæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum