Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
REF 5070513
Nýr kjarni einbýla í San Fulgencio, svæði á milli Santa Pola og Guardamar. Svæðið býður upp á allskyns þjónustu, s.s. matvöruverslanir, búðir, bari og veitingastaði, auk banka, apóteka og heilsugæslna. Mikið úrval íþrótta- og afþreyingar er í San Fulgencio sem og í Rojales, Ciudad Quesada, Benijófar, Guardamar og Santa Pola. Þar af er golf, vatnsrennibrautargarður, og ýmis vatnasport. Kjarninn er nálægt AP7 og N332 vegunum sem gerir það að verkum að auðvelt er að komast til fallegu stranda Costa Blanca sem er einungis í um 7 km fjarlægð, auk Alicante, Elche og Torrevieja, San Pedro del Pinatar og til Murcia á Costa Cálida.
Nútímaleg einbýli á einni hæð með þakverönd, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Stofan er í opnu rými með borðstofunni og eldhúsinu með stórum gluggum sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og hurð út á verönd. Utanáliggjandi stigi, frá þvottarýminu hjá eldhúsinu, leiðir upp á rúmgóða þakverönd sem er yfirbyggð að hluta með pergólu sem gerir það mögulegt að njóta Miðjarðarhafsloftlagsins allt árið um kring.
Aukalega, og eftir gengi framkvæmda, er hægt að fá sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
San Fulgencio, á milli Guardamar og Santa Pola, í sunnanverðu Alicante-héraði er bær þar sem finna má íbúðabyggð sem þekkist undir nafninu Urbanización La Marina. Í aðeins 6 km. fjarlægð frá ströndu er hér að finna frábært fasteignaframboð með fullkominni þjónustu og innviðum.
Einbýli og raðhús eru vinsælust í Urbanización La Marina sem býður upp á ein bestu gæðin miðað við verð á allri Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í San Fulgencio-La Marina:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum