Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
REF 3049234
Nýr íbúðakjarni í Los Balcones, Torrevieja. Á svæðinu er gott framboð þjónustu, stórar matvöruverslanir, skóli, kirkja, apótek og fleira. Hverfið er staðsett í aðeins mínútna fjarlægð frá miðbænum og ströndum Torrevieja og Orihuela Costa. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, ýmist á jarðhæð, með garði eða á efri hæð með þakverönd, ásamt 2ja svefnherbergja raðhúsum með garði og þakverönd. Allar eignirnar eru hannaðar á nútímalegan hátt með opnu alrými, tveimur baðherbergjum og verönd með útsýni. Í kjarnanum er stórt sameiginlegt svæði með flottri sundlaug, sérstöku svæði fyrir börnin og stórum görðum. Innifalið í verði eru bílastæði og geymsla í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum