Íbúð með einkagarði í undir 400 metra fjarlægð frá ströndinni í Punta Prima

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima

frá 51,184,100 kr
frá 341.000€

2

2

80.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4671528

Ný bygging á öfundsverðum stað á Punta Prima, í undir 400 metra fjarlægð frá ströndinni. Svæðið er á milli Torrevieja og Orihuela Costa, með úrval þjónustu í næsta nágrenni, eins og matvöruverslanir, apótek, banka, verslanir, bari og veitingastaði. Auk þess er verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard í einungis 5 mínútna akstursfjarlægð. Margskonar íþróttaaðstöðu er að finna á svæðinu, eins og padel-brautir, sundlaug og knattspyrnuvellli, auk fjögurra golfvalla á 10 mínútna radíus.

Í byggingunni eru íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Hver íbúð er með stofu í opnu rými, stórum gluggum sem opnast út á svalir sem snúa í suðvestur eða norðaustur. Íbúðir á neðri hæð eru með einkagarði, en úr efstu íbúðunum er stórkostlegt útsýni yfir hafið. Sameiginlega svæðið er á þaki byggingarinnar þaðan sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis til allra átta og er þar einnig sundlaug, nuddpottur, nokkur svæði til sólbaða, sem og hvíldarsvæði. Einnig er sameiginlegt svæði á jarðhæð með görðum og hjólastæði. Bílastæðið er í kjallaranum þar sem líka eru geymslur.

Glæsilegar íbúðir semhægt er að sníða eftir eigin höfði og eru þær allar með loftræstingu um stokk með hitastilli í stofu, hita í gólfum á baðherbergjum, innbyggðum skápum, LED-ljósum inni, geymslu og stæði í bílahúsi. Íbúðum á jarðhæð fylgir einnig sóltjald á svölum og gervigras í garði.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima

Rétt við mörk Torrevieja og Orihuela Costa er Punta Prima, fullkomin íbúðabyggð fyrir þá sem vilja kaupa fasteign á Costa Blanca.

Þar er að finna stórkostlegt úrval þjónustu, auk þess fylgir sá kostur að vera nálægt miðbæ Torrevieja en njóta um leið ró og kyrrðar á nokkuð þéttbyggðu svæði. Meginaðdráttarafl byggðarinnar í þessum hluta Orihuela Costa er gullin ströndin, strandgatan og ótrúlegt úrval tómstunda, skemmtana og fasteigna. Skoðið fasteignaúrvalið við ströndina í Punta Prima:

  • 41 km
  • 7 km
  • 25 km
  • 0 km
  • 2 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Punta Prima

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.