Einbýli á einni hæð með kjallara og einkasundlaug, í fyrstu línu við golfvöllinn La Finca

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

Þessi eign er ekki í boði


3

2

147.78 m2

465.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3727475

Nýr kjarni einbýlishúsa í fyrstu línu við golfvöllinn La Finca við suður Costa Blanca. Verslanakjarni er á staðnum og býður upp á mikið úrval af daglegum nauðsynjum og veitingastöðum, en auk þess er 5* hótel með heilsulindaraðstöðu og frábært klúbbhús með fjölbreyttri aðstöðu á svæðinu. Í nágrannabæjunum Algorfa, Quesada og Benijófar er meiri þjónusta og alþjóðlegur skóli í Quesada. Strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.

Kjarninn býður upp á einbýlishús byggð á lóðum milli 465m2 og 510m2, og velja má um tvær gerðir húsa; einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og rúmgóðum kjallara/bílskúr eða einbýlishús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum auk kjallara/bílskúrs. Báðar eignirnar eru með opinni stofu, með tvöfaldri lofthæð, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði með garði. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi og fataherbergi. Kjallari skiptist í bílskúr fyrir allt að tvo bíla og bjart fjölnotarými, þökk sé þremur patíóum sem hleypa inn náttúrulegri birtu.

Einstök staðsetning og hönnun. Eignunum fylgir loftkæling og gólfhiti á öllu húsinu, snjallheimiliskerfi, fullbúinn kjallari með bílskúr, frágenginn garður með grillsvæði og infinity sundlaug með svæði til afslöppunar.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílageymsla í kjallara
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.

Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.

  • 55 km
  • 18 km
  • 14 km
  • 1 km
  • 12 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um La Finca

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.