Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 2429013
Nútímaleg einbýlishús á gríðarfallegu svæði, Las Colinas Golf, við Orihuela Costa, suður Costa Blanca. Það er eitt fallegasta náttúrusvæði Orihuela Costa, umkringt sítrónu- og appelsínuökrum, gönguleiðum, ýmsum íþróttamannvirkjum og golfvellinum sjálfum sem unnið hefur til verðlauna. Íbúar við Las Colinas hafa aðgang að einka strandklúbbi við Campoamor.
Einbýlishúsin eru á einni hæð með kjallara og byggð á 566m2-660m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og gestasalerni. Aðalhæðin samanstendur af björtu alrými, þar sem stofa, borðstofa og nútímalegt eldhús eru sameinuð. En-suite hjónaherbergi er einnig að finna á þessari hæð. Hægt er að nálgast stóra verönd, sundlaug og BBQ svæði frá stofu. Í kjallaranum eru 2 svefnherbergi, baðherbergi og stórt margnota herbergi sem hægt er að breyta eftir hentugleikum.
Öll einbýlishúsin bjóða upp á möguleika á breytingum og þeim fylgir loftkæling/hitun, lýsing, gólfhiti á baðherbergjum og lagt er fyrir snjall heimakerfi. Þjófavörn fylgir einnig, sem og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum