Raðhús með 3 svefnherbergjum og einkasundlaug í Dolores

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Dolores

Þessi eign er ekki í boði


3

2

102.00 m2

166.57 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4706129

Ný byggð með glæsilegum raðhúsum í íbúabyggð í Dolores, bæ í Alicante-héraði, í 16 km frá ströndinni. Í þorpinu er úrval þjónustu og þæginda að finna eins og matvöruverslanir, búðir, bari og veitingastaði, banka, apótek og heilsugæslu. Byggðin er nálægt íþróttasvæði bæjarins þar sem nokkrir tennis- og padelvellir eru, körfubolta- og knattspyrnuvellir og stór sundlaug. Dásamlegar strendurnar í Marina og Guardamar eru í aðeins 15-20 mínútna akstursfjarlægð. Góð tenging er við AP-7, svo hægt er að komast hratt og örugglega til mikilvægra borga eins og Alicante, Elche, Torrevieja eða Santa Pola, á innan við hálftíma. Þess vegna er byggðin óviðjafnanlegur valkostur, fyrir þau sem leita húsnæðis til fastrar búsetu, rétt eins og þau sem vilja hús fyrir fríið.

Í boði eru glæsileg einbýli á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Neðri hæðin samanstendur af opnu, björtu rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Stórir gluggar í stofu opnast út á nokkrar verandir og að sundlauginni. Ein verönd er með opnum laufskála og því kjörin til að borða úti undir beru lofti. Á neðri hæðinni er einnig stórt svefnherbergi og baðherbergi. Tvö svefnherbergi, baðherbergi og svalir eru á efri hæðinni. Mögulegt er að breyta uppröðun á efri hæðinni eftir því á hvaða byggingastigi húsið er, svo hægt er að sleppa svefnherbergi og stækka baðherbergið eða svalirnar.

Húsin eru byggð úr fyrsta flokks efni, með uppsettu loftræstikerfi um stokk, sólarrafhlöðum, rafknúnum gluggatjöldum, innbyggðum skápum, ytri og innri lýsingu, einkasundlaug og bílastæði innan lóðar.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Dolores

Dolores er bær inni í landi við suður Costa Blanca, í um 20 km. fjarlægð frá ströndu. Þar er að finna dæmigerða Miðjarðarhafssveit, með víðáttumiklum appelsínu - og sítrónuökrum.

Fyrir þá sem kjósa ró og frið, hlýja vetur og rúmgóðar fasteignir á góðu verði, er Dolores mjög góður kostur. Þar er að finna áhugaverðar nýbyggingar, nútímaleg einbýli í gæðaflokki á samkeppnishæfum verðum. Hikið ekki og skoðið fasteignirnar í Dolores

  • 26 km
  • 26 km
  • 12 km
  • 12 km
  • 20 km
  • 6 km

Nánari upplýsingar um Dolores

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.