Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 4264697
Tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á 365m2 lóð. Vegna halla í landslagi er aðalstofan á hæðinni fyrir neðan inngangshæð. Eignin er nútímalega hönnuð, með rúmgóðri opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi, með lofthæðarháum gluggum sem opnast út á verönd, sem er yfirbyggð að hluta, og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergi, með sér baðherbergi og stóru fataherbergi, auk gestasalernis, má einnig finna á þessari hæð. Annað en-suite svefnherbergi og þriðja svefnherbergið og baðherbergi er á efri hæð. Húsinu fylgir yfirbyggt bílastæði með aðgangi að húsinu frá götunni.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum