Raðhús á einni hæð með þakverönd og einkasundlaug í Dolores de Pacheco

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Þessi eign er ekki í boði


2

2

74.50 m2

126.90 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3359131

Kjarni raðhúsa í Dolores de Pacheco, íbúðahverfi nálægt Los Alcázares, við Costa Cálida. Þorpið býður upp á úrval af daglegri þjónustu, en í Los Alcázares er mikið úrval af matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum. Strendur Mar Menor eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.

Raðhús á einni hæð, auk rúmgóðrar þakverandar, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Hátt er til lofts í stofu og fullbúið eldhús fylgir. Alrýmið opnast út á verönd með einkasundlaug og garði. Af þakveröndinni má svo njóta landslagsins í kring og þar er sumareldhús og tenging fyrir þvottavél.

Eignirnar eru hannaðar með hlýjum litum og viðarútliti og eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar, útieldhús á þakverönd, sundlaug og útisturta, auk bílastæðis á lóð.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 31 km
  • 17 km
  • 21 km
  • 4 km
  • 25 km
  • 21 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.