Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 4166614
Nútímaleg einbýlishús, á hinu vinsæla Los Alcázares svæði, við Costa Cálida. Kjarninn er nálægt La Serena golfvellinum og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegum ströndum Mar Menor og Miðjarðarhafsins í Murcia. Hér finnur þú alla nauðsynlega þjónustu fyrir daglegt líf, eins og stórmarkaði, bari, veitingastaði og hina frábæru Dos Mares verslunarmiðstöð sem er opin allt árið um kring. Tilvalinn staður fyrir íþróttaáhugafólk, en mikið úrval af vatnaíþróttum, golfi og gönguleiðum má finna á nærliggjandi náttúrusvæðum. Góð tenging er um vegi og með AP-7 og A-30 hraðbrautunum má komast til Murcia flugvallarins á 30 mínútum og Alicante flugvallarins á einni klukkustund.
Kjarninn býður upp á nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt stórri þakverönd. Jarðhæðin er með opinni hönnun sem sameinar setustofu, borðkrók og eldhús, með aðgangi að verönd, garði og sundlaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Það fer eftir gerð, hvort svefnherbergin hafa aðgang að sér verönd eða einni sameiginlegri verönd. Ytri stigi, frá veröndinni á fyrstu hæð, leiðir að stórri þakverönd, fullkomið til að njóta sólarinnar allt árið. Húsin eru með stórum, lokuðum bílskúr með plássi fyrir tvo bíla, í kjallara. Bílskúrinn hefur innri aðgang að eigninni.
Eignunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, eldhústæki, sumareldhús á þakverönd með foruppsetningu fyrir þvottavél, gervigras í garðinum og einkasundlaug með útisturtu.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum