Nútímalegt einbýli með 3 svefnherbergjum og sundlaug, 800m frá ströndinni í Santiago de la Ribera

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

frá 52,930,500 kr
frá 355.000€

3

3

110.00 m2

165.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4546803

Nýr kjarni með einbýlishúsum og íbúðum, aðeins 800m frá ströndinni í Santiago de la Ribera, við Costa Cálida. Þessi bær, við strendur Murcia, býður upp á mikið úrval af þjónustu og þægindum sem finna má í stuttri fjarlægð frá eignunum. Hin glæsilega Dos Mares verslunarmiðstöð er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð, með úrvali verslana og veitingastaða ásamt kvikmyndahúsi. Svæðið er einnig tilvalið fyrir áhugafólk um útivistaríþróttir, með ýmsum golfvöllum, gönguleiðum í nærliggjandi fjöllum og vatnaíþróttastarfsemi við strendur Mar Menor. AP7 hraðbrautin gerir það auðvelt að komast til annarra mikilvægra borga á svæðinu, eins og Murcia og Cartagena á 30 mínútum og Alicante á einni klukkustund.

Samstæðan samanstendur af nútímalegum tveggja hæða einbýlishúsum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum (2 en-suite), ásamt rúmgóðri þakverönd. Þá eru líka íbúðir í boði, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með garði eða efsta hæð með þakverönd. Allar eignirnar eru með nútímalegri og hagnýtri hönnun, með stórri, opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta. Einbýli og íbúðir á jarðhæð eru með hellulagðri verönd með einkasundlaug við stofuna og litlum garði aftan við eignina. Íbúðirnar á efstu hæð eru með 83m2 þakverönd með einkasundlaug. Þessi glæsilegu útisvæði eru tilvalin til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins.

Eignunum fylgir loftkæling, innbyggð eldhústæki, innréttaðir skápar, einkasundlaug og, allt eftir eign, bílastæði á lóð eða á sameiginlegu bílastæði.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið. 

 Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.

  • 28 km
  • 11 km
  • 27 km
  • 1 km
  • 19 km
  • 16 km

Nánari upplýsingar um San Javier - Santiago

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.